Saknaðarilmur

Saknaðarilmur

Sýning ársins snertir okkur öll
FRUMSÝNING
15.2.2024
Lengd
1.40 ekkert hlé
VERÐ
7.950

Sýning ársins sýnd þriðja leikárið í röð

Verkið Saknaðarilmur er nú sýnt þriðja leikárið í röð vegna fjölda áskorana, enda hefur sýningin notið einstæðra vinsælda og snert áhorfendur djúpt. Saknaðarilmur var sigurvegari Grímunnar í fyrra, hlaut verðlaunin sýning ársins, leikrit ársins, leikkona ársins og tónlist ársins. Magnaður efniviður Elísabetar Jökulsdóttur öðlast nýtt líf á leiksviðinu í meðförum sama listræna teymis og skapaði tímamótasýninguna Vertu úlfur. Einstaklega áhrifamikil sýning, gædd sjónrænum töfrum, um viðkvæm en brýn málefni sem snerta okkur öll.

Þegar fullorðin skáldkona missir móður sína er komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra? Verkið er áhrifarík saga af lítilli, draumlyndri stúlku sem verður að manísku skáldi, ástföngnum fíkli og stórskemmtilegum sögumanni. Hún er brotin, beitt og brjáluð. Geta áföll gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða?

Verðlaunasýning sem lætur engan ósnortinn!

 

 

Nýtt leikverk byggt á rómuðum bókum Elísabetar Jökulsdóttur

Þegar fullorðin skáldkona missir móður sína er komið að stóra uppgjörinu. Nú fyrst er hún tilbúin að horfast í augu við erfiða æsku sína, föðurmissi, geðveikina, ástina og sturlað lífshlaup sitt. Af hverju náðu þessar tvær konur aldrei sambandi, þó að þær hafi deilt öllu lífi sínu, og reynt að horfast í augu í gegnum sorgir og sigra? Verkið er áhrifarík saga af lítilli, draumlyndri stúlku sem verður að manísku skáldi, ástföngnum fíkli og stórskemmtilegum sögumanni. Hún er brotin, beitt og brjáluð. Geta áföll gert okkur veik? Erfist þjáning á milli kynslóða?

Sýningar á Akureyri í mars.

Leikari

Myndbönd

Stikla

Ef maður er aldrei snertur sem barn þá er maður óljós. Maður er í raun ekki til.

Listrænir stjórnendur

Aðrir aðstandendur

Sýningarstjórn og umsjón
Tæknistjórn á sýningum
Aðstoð við leikstjóra
Aðstoð við myndband
Dramatúrgísk ráðgjöf
Leikgervadeild, yfirumsjón
Búningadeild, yfirumsjón
Teymisstjóri leikmyndaframleiðslu
Leikmunir, yfirumsjón
Ljósmyndir úr sýningu

Sérstakar þakkir: Elísabet Kristín Jökulsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Stefán Baldursson, Héðinn Unnsteinsson, Magnús Geir Þórðarson, Melkorka Tekla Ólafsdóttir, Hrafnhildur Hagalín, Ilmur Stefánsdóttir, Halldór Guðmundsson, Maríanna Clara Lúthersdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir, Andri S. Björnsson, Tinna Lind Gunnarsdóttir, Ólafur Egill Egilsson, Benedikt Erlingsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Elín Ebba Ásmundsdóttir, Brynhildur Guðjónsdóttir, Hafliði Arngrímsson, Arna Hauksdóttir – Áfallsaga kvenna, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Björg Ragnheiður Vignisdóttir. Dagur, Dísa, Stefán og Björn Thors.

Ráðgjöf varðandi áföll og minningar: Andri S. Björnsson, Arna Hauksdóttir.

 

Opnunartími miðasölu yfir hátíðarnar
23.des 12:00 – 21:00
24.des 10:00-14:00
25.des LOKAÐ
26.des 16:00 – 19:00
27.des 12:00 – 19:00
28.des 12:00 – 19:00
29.des 14:00 – 18:00
30.des 14:00 – 19:00
31.des LOKAÐ
1.jan LOKAÐ

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími