/
Prinsinn – ekta íslenskur skandall
Nýttu þér tilboðið

Er maður áreiðanlegt vitni í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt?

17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?


Nemendum býðst að kaupa miða á sérstöku 2 fyrir einn tilboði

Kaupa miða á tilboði

Leikarar

Prinsinn er langbesta sjoppan undir Jökli, og það er þar sem hlutirnir gerast,  – sérstaklega ef maður vinnur í sjoppunni og er með lyklana!

17 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum ásamt vini sínum þegar síminn hringir. Sæta stelpan sem vinnur á Prinsinum er í símanum. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Hvernig getur maður orðið pabbi sautján ára, og mamman bara sextán? Er framtíðin í rúst?


Nemendum býðst að kaupa miða á sérstöku 2 fyrir einn tilboði

Kaupa miða á tilboði

Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt leikrit, byggt á sönnum atburðum, sem talar beint til okkar

Í Prinsinum kynnumst við manni á fertugsaldri sem bíður í ofvæni eftir því að barn hans komi í heiminn. Eftirvænting og kvíði takast á í huga hans, og atburðir sem áttu sér stað tveimur áratugum fyrr fara að sækja á hann.

Nemendum býðst að kaupa miða á sérstöku 2 fyrir einn tilboði

Kaupa miða á tilboði

Listrænir stjórnendur

Þjóðleikhúsið sýnir í samstarfi við Frystiklefann á Rifi.

Verkefnið er styrkt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu – Leiklistarráði og Sóknaráætlun Vesturlands.

Tónlist í sýningunni er eftir Úlf Eldjárn, en einnig eru flutt brot úr lögum eftir aðra: Sumarsykur (Igore), Hjá þér (Sálin hans Jóns míns), Spenntur (Á móti sól), Ég er frjáls (Facon), Fingur (Írafár), Hef ekki augun af þér (Sóldögg), Skjóttu mig (Skítamórall).

Titillag sýningarinnar, Prinsinn, er eftir Úlf Eldjárn, Vigdís Hafliðadóttir syngur og er jafnframt höfundur texta.

Aðrir aðstandendur sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími