Leikhússkóli Þjóðleikhússins – Sýning 2026

Leikhússkóli Þjóðleikhússins – Sýning 2026

Tvö leikverk eftir útskriftarárgang Leikhússkóla Þjóðleikhússins
SVIÐ
Litla sviðið
Sýningar
6. júní 2026
Miðaverð
500 kr.
Áætluð lengd
1.45 eitt hlé

Leikhússkóli Þjóðleikhússins – Útskriftarsýning 2026

Útskriftarárgangur Leikhússkóla Þjóðleikhússins setur upp eigin leiksýningu, sem samanstendur af tveimur stuttum leikverkum eftir nemendur úr skólanum, og er hún að öllu leyti unnin og flutt af nemendum.

Nemendur leikhússkólans hafa á leikárinu fengið að kynnast starfsemi allra deilda Þjóðleikhússins sem og starfi listrænna stjórnenda við leiksýningar, og prófað sig áfram með þá kunnáttu sem þau hafa öðlast. Í síðasta hluta námsins verða nemendur að leikhóp þar sem þau setja saman sína eigin sýningu og ganga í öll störf sem uppsetning leiksýningar krefst.

Nemendahópurinn í ár vann tvö 40 mínútna verk sem mynda útskriftarsýninguna. Nemendur sjá um framleiðslu, handritaskrif, leikstjórn, leikmynda- og búningahönnun, hljóðhönnun, ljósahönnun, dans- og sviðshreyfingar, sýningarstjórn og leik, undir handleiðslu kennara með stuðningi frá starfsfólki Þjóðleikhússins.

Þann 6. júní er uppskeruhátíð á Litla sviði Þjóðleikhússins við Lindargötu þar sem nemendur sýna afrakstur vinnu sinnar. Sýningin er flutt tvisvar á sama degi, kl. 14:00 og kl. 18:00 og tekur tæplega tvo tíma með hléi. Aðalæfing verður föstudaginn 5. júní kl. 13:00. Miðaverð er 500 kr. og miðasala fer fram á tix.is.

Þjóðin mín

Hver ber raunverulega ábyrgð á íslensku þjóðarsálinni? Hvað gerist þegar verndarar landsins snúast hver gegn öðrum?
Þetta þarf ekki að vera flókið. Hugsum bara um Ísland.

Leikarar:

Gammurinn: Bára Katrín Jóhannsdóttir
Drekinn: Birta Dís Gunnarsdóttir
Griðungurinn: Gunnar Smári Sigurjónsson
Bergrisinn: Þór Ari Grétarsson

Aðstandendur:
Höfundur: Þórhallur Arnórsson
Leikstjóri: Ólafur Björgólfsson
Dramatúrg: Bára Katrín Jóhannsdóttir
Framleiðsla og sýningarstjórn: Birta Dís Gunnarsdóttir
Leikmynda- og leikmunahönnuður: Soffía Guðlaugardóttir
Búningahönnuður: Soffía Guðlaugardóttir og Gunnar Smári Sigurjónsson
Ljósahönnuður: Þór Ari Grétarsson
Hljóðhönnuður: Birta Dís Gunnarsdóttir og Þór Ari Grétarsson

Þumalnögl

Hvað er raunverulegt og hvað ekki? Hversu langt myndirðu ganga til að búa til afþreyingarefni? Hvenær fellur gríman?

Leikarar:
Styrnir Birnir: Birgir Dagur Bjarkason
Snjór Þór: Daði Víðisson
Sólveig Sálfræðingur: Ellý Wöhler Nökkvadóttir
Kría Mía: María Þrastardóttir
Hrím: Svala Norðdahl Emilíudóttir

Aðstandendur:
Höfundur: Svala Norðdahl Emilíudóttir
Leikstjóri: Arnaldur Halldórsson
Framleiðsla og sýningarstjórn: Daði Víðisson
Leikmyndahönnuður: María Þrastardóttir
Leikmunahönnuður: Birgir Dagur Bjarkason
Búningahönnuður: Ellý Wöhler Nökkvadóttir
Ljósahönnuður: Daði Víðisson
Hljóðhönnuður: Arnaldur Halldórsson

 
Viðvörun vegna efnistaka sýningarinnar
Vakin er athygli á því að í þessu verki er fjallað um viðkvæm og erfið málefni. Sýningin inniheldur skýrar vísanir í kynferðislega áreitni, andlegt ofbeldi og áfengisneyslu ungmenna. Áhorfendum er bent á að efnið getur vakið upp erfiðar tilfinningar.

Leikhússkóli Þjóðleikhússins

Leikhússkóli Þjóðleikhússins býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára til að kynna sér leikhúsið frá ólíkum hliðum og efla færni sína.

Leikhússkólinn býður upp á faglega eins árs leikhúsmenntun, þar sem nemendur kynna sér hin ólíku störf í leikhúsinu, meðal annars hönnun leikmynda, búninga, lýsingar og hljóðs, sýningarstjórn, leikritun, leikstjórn og leiklist. Nemendur öðlast þannig víðtæka þekkingu á listforminu og fá tækifæri til að kynnast sjálfu sér sem listafólki og styrkja sýn sína, færni og áhuga.

Umsóknarferli fyrir Leikhússkóla Þjóðleikhússins leikárið 2026-2027 hefur þegar farið fram, en auglýst verður að nýju eftir umsækjendum vorið 2027.

Um Leikhússkólann

Útskriftarnemar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími