/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Bára Katrín

/

Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026

Bára Katrín útskrifaðist af nýsköpunar- og listabraut Verzlunarskóla Íslands árið 2024. Hún tók virkan þátt í uppsetningum skólans á sýningunum Mamma Mia – Here V.Í. Go Again(2022), Hvar er draumurinn?(2023) og Rocketman(2024). Einnig er hún í stelpuhljómsveitinni Dóra & Döðlurnar, sem hefur notið velgengni í grasrótarsenu íslenskar tónlistar. Hljómsveitin spilaði á útgáfutónleikum Elínar Hall söngkonu, tónlistarhátíðinni HEIMA í Hafnarfirði og mun sveitin halda tónleikaröð um land allt sumarið 2026. Bára Katrín er lagahöfundur hljómsveitarinnar og hlaut höfundaverðlaun FTT (félags tónskálda og textahöfunda) (2023). Hún mun hafa samið öll lög af væntanlegri plötu hljómsveitarinnar, en þau lög sem gefin hafa verið út eru; Jólagleðin, Spegilmynd frosin í hel, Gatnamót, Líða fer að vetri og Leyndarmál. Hún keppti í Söngkeppni framhaldsskólanna (2024) þar sem hún hlaut annað sæti fyrir lagið Gatnamót. Síðar meir tók hún þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins árið 2025 með söngkonur Dóru & Daðlanna í bakröddum.

/
Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími