Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026
Gunnar Smári Sigurjónsson (f. 2006) er nemandi í leikhússkóla Þjóðleikhússins og er frá Akranesi. Hann stundaði nám við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og er nú við nám í leikhússkóla Þjóðleikhússins. Gunnar hefur komið fram í fjölda söngleikja á framhaldsskólastigi, þar á meðal í Grease, þar sem hann fór með hlutverk Kenickie. Á lokaári sínu í FVA lék hann aðalhlutverk í söngleiknum Gauragangi, þar sem hann fór með hlutverk Orms, og lék einnig í sýningunni Hlið við hlið á sínu öðru ári. Í grunnskóla lék hann aðalhlutverk í söngleiknum Hunangflugur og villikettir í Grundaskóla. Hann hefur einnig tekið söngtíma hjá Brynju Valdimarsdóttur.