10. Mar. 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Leikhússkóla Þjóðleikhússins veturinn 2026-2027

Árið 2024 stofnaði Þjóðleikhúsið nýjan leikhússkóla, sem býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára til að kynna sér leikhúsið frá ólíkum hliðum og efla færni sína.

Nú er komið að því að taka inn þriðja árgang skólans og er skráning í Leikhússkóla Þjóðleikhússins fyrir haustið 2026 hafin.

Tekið verður við umsóknum frá einstaklingum fæddum á árunum 2004-2008.

Umsóknarfrestur er til og með 31. mars 2026.

Skil á stuttu verkefni sem sent verður út eftir að umsóknarfresti líkur er 12. apríl 2026.

Boð í prufur verða send út 15. apríl

Prufur verða haldnar daganna 21. og 22. maí 2026.

Meira um leikhússkólann

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími