/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Birta Dís Gunnarsdóttir

/

Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026

Birta Dís Gunnarsdóttir útskrifaðist úr Menntaskólanum í Tónlist vorið 2025 og hélt útskriftartónleika ásamt hljómsveit í Hörpunni. Hún var í listhóp í kvikmyndaleik við Sviðslistaskólann Dýnamík í 2 ár og lék þar m.a. í stuttmyndinni Heimavist sem hlaut Eddutilnefningu. Birta Dís starfaði í Leikfélaginu Draumum í sex sumur þar sem hún lék í fjölda leikrita og steig sín fyrstu skref í leikstjórn og framleiðslu. Hún gaf út sitt fyrsta lag Fljúgðu Burt haustið 2025 sem sat topp 20 listann á Bylgjunni og var hún tilnefnd nýliði ársins á Hlustendaverðlaununum 2026. Birta Dís starfar nú sem ljósakona í Þjóðleikhúsinu og er einnig nemandi í Leikhússkóla Þjóðleikhússins. Hún sinnir starfi framleiðanda og hljóðhönnuðs í útskriftarverkinu Þjóðin Mín ásamt því að leika.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími