/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ólafur Björgúlfsson

/

Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026

Ólafur steig sín fyrstu skref í leiklist í Hagaskóla og tók þátt í tveimur söngleikjum þar. Við komu sína í Menntaskólann í Reykjavík tók Ólafur strax virkan þátt í uppsettningum á vegum skólans. Hann lék í söngleikjunum Litlu Hryllingsbúðinni, Grease og Með allt á hreinu og í leikritinu Músagildran á tíma sínum í MR. Ólafur var þá einnig í stjórn Herranætur og tók þátt í framleiðslu söngleiksins Með allt á hreinu. Ólafur lék á Ungleik 2025 í verkinu Kýldu mig. Þjóðin mín, útskriftarverkefnið við Leikhússkóla Þjóðleikhússins, er frumraun Ólafs sem leikstjóri.

/
Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími