/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Svala Norðdahl Emelíudóttir

/

Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026

Svala Norðdahl Emilíudóttir er stúdent frá Fjölbrautaskóla Suðurlands af opinni braut þar sem hún hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í leiklist. Áður stundaði hún nám við Hofstaðaskóla og Grunnskólann á Hellu. Svala stundar nú nám í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur aflað sér fjölbreyttrar reynslu á sviði leiklistar og tónlistar og tekið þátt í söngleikjunum Bugsy Malone og Oliver við Söngskólann í Reykjavík. Svala endurvakti leikfélag Fjölbrautaskóla Suðurlands og samdi söngleik sem var settur upp árið 2022, auk þess sem hún tók þátt í uppfærslum Leikfélags Hveragerðis á Benedikt Búálfi og Litlu hryllingsbúðinni. Hún hefur einnig haldið leiklistarnámskeið fyrir börn á vegum Rangárþings ytra, skipulagt tónleika með stuðningi menningarstyrks og skrifað fimm leikverk.

/
Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími