Leikhússkóli Þjóðleikhússins, útskrift vorið 2026
Birgir Dagur Bjarkason er stúdent úr Fjölbrautaskólanum í Garðabæ af
leiklistarbraut. Áður var hann í grunnskólanum Sjálandsskóla. Birgir hóf
leiklistarferil sinn árið 2020 þegar hann lék aðalhlutverk í kvikmyndinni
Berdreymi. Síðan þá hefur hann leikið í allskyns kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Birgir Dagur var tilnefndur sem leikari ársins í aðalhlutverki á Edduverðlaununum 2023.