22. Maí. 2024

Nýr leikhússkóli fyrir ungt fólk stofnaður í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla, sem býður upp á einstakt tækifæri fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára, með brennandi áhuga á leikhúsi, til að kynna sér leikhús frá ólíkum hliðum og efla færni sína og þekkingu. Skólinn tekur til starfa í haust og inntökuferli hefst nú í maí

Leikhússkóli Þjóðleikhússins býður upp á faglega eins árs leikhúsmenntun fyrir ungt fólk á aldrinum 18-22 ára. Nemendur fá innsýn og kynningu á hinum ólíku störfum í leikhúsinu, meðal annars hönnun leikmynda, búninga, lýsingar og hljóðs, sviðstækni, sýningarstjórn, leikritun, leikstjórn og leiklist. Nemendur öðlast þannig víðtæka þekkingu á listforminu og fá tækifæri til að kynnast sjálfu sér sem listafólki og styrkja sýn sína, færni og áhuga. Námið er einstaklingsmiðað og byggist á að virkja sjálfstæða hugsun nemenda í skapandi samvinnu, með leiðsögn frá kennara, í faglegu umhverfi.  

 Í gegnum námið mynda nemendur leikhóp þar sem þau taka að sér ólík störf eftir áhugasviði hvers og eins. Hópurinn vinnur að sýningu yfir veturinn, samhliða námskeiðum og fræðslu, sem í lok vetrar verður sýnd á fjölum Þjóðleikhússins. Námið nær yfir eitt ár, haustönn hefst í byrjun september og vorönn lýkur í byrjun júní. Kennt er tvisvar í viku, tvo tíma í senn, auk heimavinnu, leikhúsferða, vinnusmiðju, heimsókna á æfingar í leikhúsinu og þriggja vikna æfingaferlis í lok vorannar.  

Skólastjóri og aðalkennari leikhússkólans er Vala Fannell, sem lærði leiklist og leikstjórn í London og lauk MA-námi í listkennslu frá LHÍ. Vala hefur kennt leiklist á öllum skólastigum og byggði upp nýja sviðslistabraut við Menntaskólann á Akureyri. Auk Völu kemur listafólk úr Þjóðleikhúsinu að kennslunni, m.a. kennir Ilmur Stefánsdóttir leikmyndahönnun, Filippía I. Elísdóttir búningahönnun, Björn Bergsteinn Guðmundsson ljósahönnun, Brett Smith hljóðhönnun, Elísa Sif Hermannsdóttir sýningarstjórnun og Matthías Tryggvi Haraldsson handritaskrif. 


Skráning í inntökupróf fyrir leikárið 2024-25 er hafin

 Skráning í viðtöl og inntökuprufur Leikhússkóla Þjóðleikhússins fyrir leikárið 2024-25 er hafin á leikhusid.is. Tekið verður við umsóknum frá einstaklingum fæddum á árunum 2002-2006. Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2024. 
Skólagjöld fyrir veturinn 2024-2025 eru kr. 75.000 á önn. 

 Allt að 18 umsækjendur eru teknir inn ár hvert. Lögð verður áhersla á jafnrétti og fjölbreytileika og öll eru hvött til að sækja um óháð uppruna, kyni, kynhneigð og hreyfigetu. Námið stendur einnig opið ungmennum sem ekki tala íslensku, að því gefnu að góð enskukunnátta sé til staðar.  

 Leikhússkóli Þjóðleikhússins er viðbót við viðamikið fræðslustarf Þjóðleikhússins. Þjóðleikhúsið skapar boðssýningar fyrir ólík skólastig, vinnur fræðsluefni, tekur á móti hópum og býður upp á námskeið í sviðstækni fyrir áhugaleikfélög og framhaldsskóla. 

ALLT UM SKÓLANN
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími