08. Maí. 2024

50. sýningin á Orð gegn orði

Það hefur ekkert lát verið á vinsældum einleiksins Orð gegn orði, þar sem Ebba Katrín Finnsdóttir þykir fara á kostum í hlutverki lögfræðingsins Tessu. Miðvikudaginn 8. maí er komið að 50. sýningunni en alls hafa um tíu þúsund leikhúsgestir upplifað þessa mögnuðu sýningu. Nú er nánast orðið uppselt fram á vorið og hver að verða síðastur að tryggja sér miða.

Í ljósi mikillar eftirspurnar var Orð gegn orði færð á Stóra sviðið fyrr í vetur og fullt hefur verið á allar sýningar. Bæði Þóra Karítas Árnadóttir leikstjóri og Ebbu Katrín Finnsdóttur hafa fengið mikið lof fyrir sína vinnu, sem og allir listrænir stjórnendur sýningarinnar. Orð gegn orði hefur vakið sterk viðbrögð áhorfenda sem hafa ekki sparað stóru orðin.

KAUPA MIÐA

Eitthvað verður að breytast
Í verkinu segir frá Tessu, ungum og metnaðarfullum lögmanni, sem hefur tekist að klífa hratt upp metorðastigann. Hún vinnur hvert málið á fætur öðru, með framúrskarandi þekkingu sinni á lagabókstafnum, ver sakborninga af fimi og prófar vitni með úthugsuðum spurningum. Skyndilega verður ófyrirsjáanlegur atburður í einkalífi hennar til þess að allt sem virtist svo borðleggjandi sýnist ekki eins einfalt og skýrt og áður, og hún neyðist til að taka hugmyndir sínar og viðhorf til gagngerrar endurskoðunar.

Í verkinu er tekist á við ágengar spurningar um feðraveldið, réttarkerfið, kynferðisbrotamál, siðgæði, sekt og sönnunarbyrði. Hvaða vægi hafa tilfinningar og réttlætiskennd í flóknum málum, og hvenær er sekt nægilega sönnuð? Ebba Katrín Finnsdóttir leikur þennan magnaða verðlaunaeinleik.

Suzie Miller hlaut Olivier-verðlaunin fyrir leikritið árið 2023
Orð gegn orði (Prima Facie) er margverðlaunað, nýtt verk sem sló í gegn á West End og Broadway, eftir að hafa unnið til leikritunarverðlauna ástralska rithöfundasambandsins. Verkið hlaut Olivier-verðlaunin árið 2023, auk þess sem sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Olivier-verðlaunanna og Tony-verðlaunanna.

Höfundur
Suzie Miller
Leikstjórn
Þóra Karítas Árnadóttir
Þýðing
Ragnar Jónasson
Leikmynd og búningar
Finnur Arnar Arnarson
Tónlist
Gugusar
Lýsing
Jóhann Friðrik Ágústsson
Myndbandshönnun
Ásta Jónína Arnardóttir
Hljóðhönnun
Kristján Sigmundur Einarsson

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími