03. Maí. 2024

Fiðlarinn á þakinu valin áhugaverðasta áhugasýning ársins

Sýning Litla leikklúbbsins á Ísafirði á Fiðlaranum á þakinu hefur verið valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins.Þetta er jafnframt í þrítugasta og annað sinn sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir vali á áhugaleiksýningu ársins. Að þessu sinni sóttu alls tíu leikfélög um að koma til greina við valið með ellefu sýningar. Formaður dómnefndar var Vala Fannell, en með henni í dómnefnd sátu leikararnir Örn Árnason og Björn Thors.
Við óskum Litla leikklúbbnum hjartanlega til hamingju og hlökkum til að taka á móti þeim þegar sýningin verður sett upp á Stóra sviði Þjóðleikhússins í júní. Miðasala verður auglýst síðar.

Umsögn dómnefndar um sýninguna: Það er samdóma álit dómnefndar að sýning Litla leikklúbbsins á Fiðlaranum á þakinu í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur skuli verða fyrir valinu sem athyglisverðasta áhugaleiksýning leikársins 2023-2024. Sýningin er unnin af gríðarlegum metnaði og hvergi slegið af kröfum við uppfærsluna. Frábært samstarf Litla leikklúbbsins og Tónlistarskólans á Ísafirði skilar ljómandi góðri útkomu.

Umgjörð sýningarinnar er einföld en vönduð og áhrifarík og vel tekst að fanga tíðaranda og kjarna verksins. Myndir sem varpað er upp gefa annars einfaldri leikmynd sterkan svip. Hljóð er vel unnið, sem og leikgervi og búningar. Hópsenurnar einstaklega vel útfærðar þrátt fyrir mikinn fjölda á sviðinu og sviðshreyfingar skemmtilegar.

Tónlistarflutningur í sýningunni er til fyrirmyndar og söngur til mikillar prýði. Leikhópurinn er samheldinn og sterkur. Hver og ein persóna fær sitt pláss. Leikararnir skila persónum sínum ljóslifandi og tvinna saman þessa átakanlegu og fallegu sögu og skila henni til áhorfenda af öryggi. Það má sjá sköpunargleði hvers og eins sem að sýningunni kemur skína í gegn og úr verður heildstæð og kraftmikil sýning. 

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími