15. Maí. 2024

Saknaðarilmur með flestar tilnefningar til Grímuverðlauna í ár

Þjóðleikhúsið hlýtur alls 30 tilnefningar til Grímunnar að þessu sinni. Saknaðarilmur er sú sýning sem hlýtur flestar tilnefningar til Grímunnar þetta árið eða alls 8 tilnefningar og hún er tilnefnd sem sýning ársins. Frost er tilnefnd sem barnasýning ársins og hlýtur fjórar tilnefningar. Ást Fedru hlýtur sex tilnefningar. Þá hljóta Edda, og Ekki málið tvær tilnefningar, Mútta Courage þrjár auk þess sem Ebba Katrín Finnsdóttir er tilnefnd sem leikkona ársins fyrir leik sinn í Orð gegn orði. Verkið eftir Jón Gnarr er tilnefnt sem leikverk ársins og Óperan Póst Jón hlýtur eina tilnefningu. Síðast en ekki síst hlaut verkefnið House of revolution tilnefningu til hvatningarverðlauna Grímunnar.

Þessi glæsilega uppskera kemur í kjölfar eins aðsóknarmesta vors í Þjóðleikhúsinu í manna minnum. Sýningar í Þjóðleikhúsinu hafa gengið einstaklega vel á þessu ári og þrjár sýningar fagna fimmtugustu uppseldu sýningunni nú í maí. Auk Frosts eru þrjár gríðarlega vinsælar en mjög ólíkar sýningar í sýningu en þetta eru Saknaðarilmur, Orð gegn orði og Á rauðu ljósi en sala á sýningar næsta haust er hafin á allar þessar vinsælu sýningarnar.

Nú er allt að fyllast á sýningar vorsins, uppselt á allar sýningar á Saknaðarilmi þar sem Unnur Ösp Stefánsdóttir sýnir stórleik. Ekki er frammistaða Ebbu Katrínar Finnsdóttiur síðri í Orð gegn orði en sýningin var færð á Stóra sviðið eftir páska og hefur verið fullt út úr dyrum. Nokkuð langt er síðan uppselt var orðið uppselt á allar sýningar þessa leikárs á Á rauðu ljósi – en nú í vikunni hófst sala á sýningar haustins á þessum vinsæla einleik. Auk þess er sala hafin á sýningar á Frosti næsta haust, en nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á þessa einstöku fjölskylduskemmtun þetta vorið.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími