Kristján Sigmundur Einarsson lauk hljóðtækninámi frá SAE institute í London árið 2011. Hann hefur starfað sem hljóðmaður við Þjóðleikhúsið frá árinu 2013 og hannað hljóðmyndir fyrir fjölda sýninga, meðal annars Þetta er gjöf, Orð gegn orði, Ást Fedru, Draumaþjófinn, Sem á himni og Sjö ævintýri um skömm. Hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir hljóðmynd ársins fyrir Ást Fedru og ásamt Eggerti Pálssyni fyrir Ofsa og hefur auk þess verið tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir Segulsvið og Engilinn. Kristján hefur starfað við fjölda hljóðverkefna utan leikhússins og hefur leikið með ýmsum hljómsveitum.
Starfsfólk Þjóðleikhússins