Taylor Mac

Taylor Mac

Lifandi goðsögn í Þjóðleikhúsinu
SVIÐ
Stóra svið
VERÐ
6.900
Opnunarsýning Listahátíðar í Reykjavík 2022

Á undanförnum tveimur áratugum hefur Taylor Mac skapað sýningar sem í senn ögra og fagna fjölbreytileika mannlífsins, og hafa hlotið alþjóðleg verðlaun.

Í sýningunni A 24-Decade History of Popular Music fer Mac yfir sögu Bandaríkjanna frá stofnun þeirra árið 1776 frá persónulegu og óvenjulegu sjónarhorni. Verkið var mörg ár í vinnslu og var upprunalega sýnt sem stakur 24 klukkutíma viðburður. Sýningin var valin á lista New York Times yfir bestu sviðslistaviðburði, bestu leiksýningar og bestu tónlist ársins 2016, og árið 2020 hlaut Taylor Mac Ibsenverðlaunin fyrir verkið.

Fyrir fyrstu sýningu sína í Reykjavík hefur þessi margverðlaunaða sviðslistamanneskja sett saman brjálæðislega skemmtilega dagskrá, þar sem svið og salur eru eitt, og blandað er saman tónlist úr verkinu A 24-Decade og nýjum lögum. Á sviðinu með Mac verða Matt Ray, tónlistarstjóri og útsetjari, og Machine Dazzle, búningahönnuður og flytjandi, ásamt frábærri hljómsveit.

Sjá nánar vefsíðu Taylor Mac.

Vefsíða Listahátíðar í Reykjavík.

“Ein mest spennandi sviðslistamanneskja okkar tíma”

TimeOut, NY

Listrænir stjórnendur

Höfundur og flytjandi
Tónlistarstjórn, útsetningar og flytjandi
Búningahönnuður og flytjandi
Aðalframleiðandi
Aðstoðarframleiðandi

Aðrir aðstandendur

Opnunartími miðasölu

Þjóðleikhúsið er lokað í sumar.  Miðasalan á leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.  Við opnum aftur 8.ágúst.  Gleðilegt sumar.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími