/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Sigurbjartur Sturla Atlason

Leikari
/

Sigurbjartur Sturla Atlason útskrifaðist af leikarabraut LHÍ árið 2016. Hann lék titilhlutverkið í Hamlet í Borgarleikhúsinu í vetur og leikur í söngleiknum Ormstungu í Þjóðleikhúsinu. Hér í Þjóðleikhúsinu hefur hann leikið í Rómeó og Júlíu, Ást Fedru, Framúrskarandi vinkonu, Eddu, Stormi og fleiri sýningum. Meðal kvikmynda og sjónvarpssería sem hann hefur leikið í eru Ófærð 2, Lof mér að falla, Eiðurinn og Tár úr malbiki. Hann var útnefndur bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2016. Þá var hann tilnefndur til Grímunnar bæði fyrir leik og tónlist í sýningunni Rómeó og Júlíu.

 

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími