Ólafía Hrönn Jónsdóttir útskrifaðist úr Leiklistarskóla Íslands árið 1987. Hún hefur leikið fjölda hlutverka á sviði og í kvikmyndum og komið fram sem tónlistarmaður. Í Þjóðleikhúsinu í vetur leikur hún í Yermu, Jólaboðinu og Frosti. Af öðrum sýningum hér má nefna Eddu, Sjö ævintýri um skömm, Rómeó og Júlíu, Kardemommubæinn, Einræðisherrann, Lé konung, Utan gátta, Taktu lagið, Lóa! og Sjálfstætt fólk. Hún lék m.a. í Litlu hryllingsbúðinni hjá LA og Hannesi og Smára í Borgarleikhúsinu. Meðal kvikmynda og sjónvarpsþátta sem hún hefur leikið í eru True Detective, Brúðguminn og Perlur og svín. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir leik sinn í Heimsljósi og Pétri Gaut og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Beðið eftir Godot, Lé konung, Utan gátta, Ívanov, Sólarferð, Stórfengleg og Þetta er allt að koma. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Brúðgumann.
Meira um feril:
Meðal annarra verkefna Ólafíu Hrannar í Þjóðleikhúsinu eru Útsending, Fly Me to the Moon, Slá í gegn, Jónsmessunæturdraumur, Faðirinn, Álfahöllin, Móðurharðindin, Umhverfis jörðina á 80 dögum, Segulsvið, Pollock?, Svanir skilja ekki, Karma fyrir fugla, Maður að mínu skapi, Tveggja þjónn, Macbeth, Dýrin í Hálsaskógi, Bjart með köflum, Heimsljós, Gerpla, Finnski hesturinn, Af ástum manns og hrærivélar, Ívanov, Skilaboðskjóðan, Utan gátta og Brennuvargarnir. Hún lék og söng í Ástinni í Leikhúskjallaranum, ásamt Tríói Tómasar R. Hún lék m.a. hnappasmiðinn í Pétri Gaut, Ragnheiði Valdimarsdóttur í Gleðispilinu, Guðríði í Elínu Helgu Guðríði, Þrúði í Ég heiti Ísbjörg Ég er ljón, Hjördísi í Hafinu, Martein skógarmús í Dýrunum í Hálsaskógi, Chris í Dansað á haustvöku, Höllu í Gauragangi, titilhlutverkið í Taktu lagið, Lóa!, Soffíu frænku í Kardemommubænum, Charlotte í Don Juan, Nönnu systur í samnefndu verki, Möggu í Kennarar óskast, Frúmu-Söru í Fiðlaranum á þakinu, ömmu Einfríðar í Grandavegi 7, Scout í Poppkorni, Guðrúnu í Solveigu og Rauðsmýrarmaddömuna og Brynju í Sjálfstæðu fólki. Hún lék hér einnig saungprófessorynjuna í Strompleiknum, Inès í Lífið þrisvar sinnum, Olgu Hlín Arnfinnsdóttur í farsanum Allir á svið, Ragnheiði Birnu (eldri) og ýmis hlutverk í Þetta er allt að koma og frú Peachum í Túskildingsóperunni. Hún fór með hlutverk Ásu í Pétri Gaut og aðalhlutverkið í Stórfengleg. Í Borgarleikhúsinu lék Ólafía Hrönn einnig í Með vífið í lúkunum og Beðið eftir Godot, en síðarnefnda verkefnið var í samstarfi við Kvenfélagið Garp. Meðal kvikmynda eru Sumarlandið, Mamma Gógó, Brúðguminn og Mýrin.