Taktu flugið, beibí!

Taktu flugið, beibí!

eftir Kolbrúnu Dögg Kristjánsdóttur. Leikstjórn: Ilmur Stefánsdóttir
SVIÐ
Kassinn
FRUMS.
12.9. 2024
VERÐ
7.550 KR.
Áætluð lengd
1.20 ekkert hlé
Kaupa leikhúskort

Framtíðardraumar, hindranir, barátta og sigrar

Stúlka ákveður að taka þátt í skólahlaupinu. Hún hleypur af stað. Hún er ein af sætu og vinsælu stelpunum og ætlar að verða leikkona þegar hún verður stór. Hún byrjar að dragast aftur úr. Bilið stækkar á milli hennar og hópsins. Stúlkan blæs sápukúlur og speglar sig í þeim. Sápukúlurnar svífa upp í himininn og brot úr lífshlaupi hennar birtast.  

 

Heillandi verk um baráttu og sigra, byggt á persónulegri reynslu

Sögupersónan leiðir okkur í gegnum líf sitt sem manneskja með líkamlega skerðingu sem ágerist með aldrinum. Í fallegu, hvetjandi og áhrifamiklu verki, þar sem tónlist, myndlist og dansi er fléttað saman við frásögnina, fylgjumst við með baráttu fyrir framtíð, sjálfstæði og réttindum, og leit að ást og tengslum. Taktu flugið, beibí er einstök saga sem á erindi við okkur öll, saga um framtíðardrauma, ást, fjölskylduna, baráttu og sigra. Leikritið er byggt á persónulegri reynslu og lífshlaupi höfundarins, Kolbrúnar Daggar, sem tekur þátt í sýningunni. Hún hefur lokið námi af sviðshöfundabraut LHÍ og meistaranámi í ritlist við HÍ, og er þetta fyrsta leikverk hennar sem sett er á svið í atvinnuleikhúsi.

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Aðrir aðstandendur

NPA aðstoðarfólk Kolbrúnar Daggar Kristjánsdóttur: Alexandra Maria Royce, Lúcía Sigrún Ólafsdóttir, Natalía Björnsdóttir Bender, Rut Karlsdóttir, Sannija Brunovska.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími