Leikari
Ilmur Kristjánsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2003. Hún hefur leikið í fjölda leiksýninga, sjónvarpsþátta og kvikmynda og samið leikið efni fyrir sjónvarp og leikhús. Hún leikur í Eltum veðrið, Nýju eldhúsi eftir máli og Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu í vetur og leikstýrði Elskan, er ég heima? hjá LA. Hún lék hér m.a. í Ekki málið, Sjö ævintýrum um skömm, Yermu, Jólaboðinu, Nashyrningunum, Kópavogskróniku þar sem hún var annar af höfundum leikgerðar, Englinum, Einræðisherranum, Íslandsklukkunni, Gerplu, Ívanov og Heddu Gabler. Hún lék m.a. í Línu langsokk, Svar við bréfi Helgu og Fólkinu í kjallaranum hjá LR, í kvikmyndunum Fullt hús og Fúsa og sjónvarpsþáttunum Systraböndum, Ófærð og Stelpunum. Hún var höfundur og annar leikstjóri jóladagatalsins Randalín og Mundi: Dagar í desember. Hún hlaut Grímuna fyrir Ívanov og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Ekki málið, Kópavogskróniku, Engilinn, Fólkið í kjallaranum, Ausu Steinberg, Sölku Völku, Ófögru veröld og Íslandsklukkuna. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Stelpurnar.
Meira um feril:
Meðal annarra verkefna í Borgarleikhúsinu má nefna Úti að aka, Ófögru veröld, Sölku Völku, Ausu Steinberg, Chicago, Púntila og Matta, Sekt er kennd, Belgíska Kongó, Terrorisma og Ræðismannsskrifstofuna.
Ilmur lék meðal annars í kvikmyndunum, Ófeigur gengur aftur, Brúðgumanum og Dís, og sjónvarpsþáttunum Ástríði. Hún var meðal handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Stelpnanna og Ástríðar, sem hlutu fjölda tilnefninga til Eddunar.