Þetta er gjöf
Ef þú gætir fengið eina ósk uppfyllta, hvers myndirðu óska þér?
Sóley kemur heim af djamminu um sumarnótt og finnur ókunnugan mann liggjandi meðvitundarlausan við útidyrnar. Hún og faðir hennar ákveða að skjóta skjólshúsi yfir manninn en ekki getur þau órað fyrir afleiðingunum.
Annar maður skýtur upp kollinum, vill þakka feðginunum fyrir hjálpsemina og býður föður Sóleyjar að óska sér einhvers. Hann lofar því að óskin muni rætast, hver sem hún er. Faðirinn eygir loksins von um að geta komið sér upp úr skuldasúpunni. En ekki er allt gull sem glóir.
Leikritið Þetta er gjöf vísar í goðsöguna um Mídas, en hún birtist okkur hér í reykvískum veruleika.
Nýtt íslenskt leikrit sem var flutt af Royal Shakespeare Company.
Kolbrún Björt Sigfúsdóttir hefur haslað sér völl sem leikskáld og leikstjóri á Bretlandseyjum og víðar allt frá útskrift úr meistaranámi í leikstjórn árið 2013. Hún þreytir nú frumraun sína í íslensku atvinnuleikhúsi sem leikskáld og leikstjóri.
Leikritið Þetta er gjöf (e. This is a Gift) rataði á topplista Women’s Prize for Playwriting árið 2023 og var leiklesið hjá Royal Shakespeare Company í leikritaröðinni „37 Plays“ sama ár. Það var frumflutt hjá Pitlochry Festival Theatre í Skotlandi í sumar og hlaut þar frábæra dóma.
Leikari
Höfundur og þýðing
Listrænir stjórnendur
Aðrir aðstandendur
Starfsfólk á sýningum
Annað starfsfólk við sýninguna
Sérfræðiráðgjöf: Hilmir Jensson.
Úlfur Hansson og Gyða Valtýsdóttir, sem skipa R • O • R, semja tónlist fyrir sýninguna.
Tónlistarflutningur á upptökum: Úlfur Hansson, hljóðgervill og Gyða Valtýsdóttir, selló.