/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Gyða Valtýsdóttir

/

Úlfur Hansson og Gyða Valtýsdóttir, sem skipa R • O • R, semja tónlist fyrir sýningu Þjóðleikhússins á Þetta er gjöf.

Gyða Valtýsdóttir hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, en hún vakti fyrst athygli sem einn af meðlimum hljómsveitarinnar múm. Hún lauk tveimur meistaragráðum frá Tónlistarháskólanum í Basel í Sviss, í klassískum sellóleik og frjálsum spuna. Hún hefur unnið með fjölmörgu listafólki, samið tónlist fyrir leiksýningar, dansverk og kvikmyndir og leikið inn á fjölda hljómplatna. Gyða hefur sent frá sér fjórar breiðskífur. Þrjár þeirra hafa unnið Íslensku tónlistarverðlaunin sem plata ársins í opnum flokki og sú fjórða vann í flokknum upptökustjórn ársins. Fyrir plöturnar Evolution og Ox var Gyða tilnefnd til Norrænu tónlistarverðlaunanna og hún hlaut þau árið árið 2019 fyrir „tónlistarflutning þar sem sköpunarkrafturinn brýst fram með afgerandi rödd, frumlegum hljóðfæraleik og miklum persónutöfrum“. Gyða og Úlfur Hansson skipa tvíeykið R-O-R sem sendi frá sér plötuna Auga.

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími