/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir

Leikskáld, Leikstjóri
/

Kolbrún Björt Sigfúsdóttir leikstýrir verki sínu Þetta er gjöf í Þjóðleikhúsinu í vetur.

Kolbrún lauk BA-prófi af námsbrautinni fræði og framkvæmd (nú sviðshöfundabraut) við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands og lauk meistaranámi í Shakespeare-leikstjórn við Háskólann í Exeter árið 2013. Hún býr nú í Edinborg og hefur starfað sem leikskáld, leikstjóri og dramatúrg hjá ýmsum leikhúsum og leikhópum á Bretlandseyjum og víðar, meðal annars með leikhóp sínum Brite Theater, Traverse-leikhúsinu í Edinborg og Tron-leikhúsinu í Glasgow. Hún þreytir nú frumraun sína í íslensku atvinnuleikhúsi sem leikskáld og leikstjóri.

Leikrit Kolbrúnar Þetta er gjöf (This is a Gift á ensku) rataði á topplista Women’s Prize for Playwriting árið 2023 og var leiklesið hjá Royal Shakespeare Company í leikritaröðinni „37 Plays“ sama ár. Það var frumflutt hjá Pitlochry Festival Theatre í Skotlandi í sumar og hlaut þar frábæra dóma. Meðal annarra leikverka Kolbrúnar eru Deliverance sem Brite Theater og Vanishing Point framleiddu og Kit Kat sem sýnt var í Traverse Theatre. Kolbrún Björt var valin leikskáld Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur árin 2024 til 2026.

Kolbrún er stofnandi og listrænn stjórnandi leikhópsins Brite Theater en meðal sviðsetninga hennar hjá leikhópnum eru Coward Conscience-þríleikurinn sem unninn var upp úr verkum Shakespeares: Timonopoly, Hamlet (an experience) og Richard III (a one-person show), auk nýrra verka, Sandcastles og (Can This Be) Home.

Kolbrún var fastráðin leikstjóri við Tron Theatre 2020-2022 og setti þar upp hang og Me and My Sister Tell Each Other Everything. Sem leikstjóri hefur hún lagt sérstaka áherslu á uppsetningu nýrra leikverka og meðal leikstjórnarverkefna hennar eru The Beatles Were a Boyband hjá F-Bomb, ChildMinder hjá Genesis Productions/Traverse Theatre og Variant hjá A Play, A Pie and A Pint.

Kolbrún var tilnefnd til skosku gagnrýnendaverðlaunanna CATS Awards sem leikstjóri ársins árið 2022 fyrir Me and My Sister Tell Each Other Everything hjá Tron Theatre og hlaut leikstjórnarverðlaun hjá NAPA Festival í Karachi í Pakistan fyrir Richard III (a one-person show).

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími