Deildarstjóri
Garðar Borgþórsson hefur hannað lýsingu, séð um hljóðhönnun og samið tónlist fyrir fjölda sýninga, meðal annars í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu og Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hann hannar lýsingu fyrir söngleikinn Ormstungu og Þetta er gjöf í Þjóðleikhúsinu í vetur. Garðar hefur einnig unnið ýmsa tæknivinnu og séð um tæknikeyrslu fyrir tugi sýninga. Hann var um skeið deildarstjóri í ljósadeild Þjóðleikhússins.