/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ilmur Kristjánsdóttir

Leikari
/

Leikari

Ilmur Kristjánsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2003. Hún hefur leikið í fjölda leiksýninga, sjónvarpsþátta og kvikmynda og samið leikið efni fyrir sjónvarp og leikhús. Hún leikur í Eltum veðrið, Nýju eldhúsi eftir máli og Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu í vetur og leikstýrði Elskan, er ég heima? hjá LA. Hún lék hér m.a. í Ekki málið, Sjö ævintýrum um skömm, Yermu, Jólaboðinu, Nashyrningunum, Kópavogskróniku þar sem hún var annar af höfundum leikgerðar, Englinum, Einræðisherranum, Íslandsklukkunni, Gerplu, Ívanov og Heddu Gabler. Hún lék m.a. í Línu langsokk, Svar við bréfi Helgu og Fólkinu í kjallaranum hjá LR, í kvikmyndunum Fullt hús og Fúsa og sjónvarpsþáttunum Systraböndum, Ófærð og Stelpunum. Hún var höfundur og annar leikstjóri jóladagatalsins Randalín og Mundi: Dagar í desember. Hún hlaut Grímuna fyrir Ívanov og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Ekki málið, Kópavogskróniku, Engilinn, Fólkið í kjallaranum, Ausu Steinberg, Sölku Völku, Ófögru veröld og Íslandsklukkuna. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Stelpurnar.

Meira um feril:

Meðal annarra verkefna í Borgarleikhúsinu má nefna Úti að aka, Ófögru veröld, Sölku Völku, Ausu Steinberg, Chicago, Púntila og Matta, Sekt er kennd, Belgíska Kongó, Terrorisma og Ræðismannsskrifstofuna.

Ilmur lék meðal annars í kvikmyndunum, Ófeigur gengur aftur, Brúðgumanum og Dís, og sjónvarpsþáttunum  Ástríði. Hún var meðal handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Stelpnanna og Ástríðar, sem hlutu fjölda tilnefninga til Eddunar.

 

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími