Falstaff
Getur bragðarefurinn Falstaff mögulega haft betur gegn þessum klóku konum?
Fyrsta stóra uppfærsla hinnar nýju Óperu verður gamanóperan Falstaff eftir Giuseppe Verdi og er það í fyrsta sinn sem þetta meistaraverk er sýnt á Íslandi. Verkið er byggt á persónum úr leikritum eftir William Shakespeare og fjallar um spaugilegar tilraunir aðalsmannsins Falstaffs til að draga tvær efnaðar konur á tálar og hafa síðan fé af eiginmönnum þeirra. Þær sjá fljótt í gegnum blekkingar kauða og taka til sinna ráða. Falstaff er fjörug og leiftrandi ópera um breyskleika og blekkingar, afbrýðisemi og hégómagirnd.
„Þá var ég grannur, þá var allt í blóma.
Þetta var áður en ég kynntist rjóma.“
Fyrsta stóra uppfærsla Óperunnar
Ólafur Kjartan Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en hann er einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar og hefur um árabil farið með burðarhlutverk á óperusviðum víða um heim. Í öðrum hlutverkum er fastur hópur söngvara hinnar nýju Óperu ásamt fleiri framúrskarandi söngvurum og kór. Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir og hljómsveitarstjóri er Alexander Joel.
Óperan verður flutt á íslensku í nýrri þýðingu eftir Sólveigu Sigurðardóttur og Þórhall Auð Helgason, en þýðingar þeirra fyrir óperusýningar Óðs hafa vakið mikla athygli. Sýningin er sett upp í Eldborg í Hörpu í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands og mun fullskipuð hljómsveit sjá um hljóðfæraleik.
Á slóðum Verdis og Falstaff – námskeið
Skyggnstu á bak við tjöldin við uppsetninguna
Í tilefni sýningarinnar á Falstaff er haldið námskeið í samstarfi við Endurmenntun HÍ þar sem þátttakendur fá einstakt tækifæri til að kynna sér sögu ítalska tónskáldsins Giuseppes Verdi og síðustu óperu hans, Falstaff. Jafnframt fá þátttakendur innsýn í þann undraheim sem býr að baki svo viðamikilli óperuuppsetningu en auk fyrirlestrakvölda mun námskeiðshópurinn fylgjast með æfingu á óperunni, hitta söngvara og listræna stjórnendur og upplifa svo fyrst allra þessa uppfærslu á aðalæfingu í Eldborg.
Kennarar eru Brynhildur Guðjónsdóttir og Magnús Lyngdal Magnússon.
8. febrúar til 4. mars 2027.
Nánar um námskeið
Söngvarar