/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Ragnar Pétur Jóhannsson

/

Ragnar Pétur Jóhannsson bassasöngvari hefur komið fram í fjölda sýninga síðan að hann lauk námi í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Hann lék í tveimur uppsetningum með stúdentaleikhúsinu, Öskufall undir leikstjórn Tryggva Gunnarssonar og Meinvillt unnið upp úr Saved eftir Edward Bell undir leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar.

Hann söng í þremur óperum eftir Þórunn Guðmundsdóttur þegar hann stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík 2014 – 2017. Árið 2018 söng hann í djassóperunni „Trouble in Tahiti“ eftir Leonard Bernstein undir leikstjórn Pálínu Jónsdóttur. Nú síðast söng hann í Óperunni Fuglabjargið eftir Birni Jón Sigurðsson undir leikstjórn Hallveigar Eiríksdóttur í Borgarleikhúsinu. Ragnar stundar nám í klassískum söng við Listaháskóla Íslands. Hann syngur hlutverk Dulcamara í Ástardrykknum eftir Donizetti sem sýndur verður í Þjóðleikhúsinu haustið 2021.

/

Sýningar

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími