Don Pasquale

Don Pasquale

Sviðslistahópurinn Óður
Svið
Kjallarinn
Samstarfsaðili
Sviðslistahópurinn Óður
Lengd
1.45 eitt hlé

Ljúffengar laglínur og leiftrandi fjör

 

Sviðslistahópurinn Óður hefur sannarlega slegið í gegn í Kjallaranum með nýstárlegum og bráðskemmtilegum sýningum sínum á gamanóperunum Ástardrykknum og Don Pasquale. Hvort sem þú ert einlægur óperuunnandi eða hefur aldrei farið á óperusýningu getur þú sannarlega skemmt þér konunglega við hrífandi tónlist, sprell og fjör! Óður sýnir nokkrar sýningar á Don Pasquale í september og í mars mun hópurinn frumsýna glænýja sýningu á frönsku gamanóperunni Póst-Jón (Le postillon de Lonjumeau).

 

Don Pasquale

Don Pasquale, gamall forríkur piparsveinn á biðilsbuxunum. Ernesto, ungur og myndarlegur frændi hans og einkaerfingi. Hin glæsilega Norina, ung og efnalítil ekkja. Læknirinn og bragðarefurinn Malatesta setur af stað óborganlega atburðarás í þessari ærslafullu gamanóperu sem er full af ljúffengum laglínum og leiftrandi fjöri.

Nánd við áhorfendur og potað í óskrifaðar reglur

Sviðslistahópurinn Óður neitar að geyma óperur í glerkössum. Þau vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim rykið og leika sér að þeim, pota í óskrifaðar reglur og skemmta sér og öðrum. Þau trúa á nálægð við áhorfendur og einlæga túlkun á tungumáli sem áhorfendur skilja. Fyrsta sýning þeirra, Ástardrykkurinn, sló rækilega í gegn á síðasta leikári.

Úr gagnrýni um Ástardrykkinn:

“Þetta er vægast sagt frábærlega heppnað hjá Óði. Það má ekki á milli sjá hvert þeirra nýtur sín best. […] Það er afslöppuð en orkurík leikgleði í öllum framgangi flytjendanna.” ÞT – MBL

“Þetta unga fólk syngur svo vel að ekki þarf að kvíða óperuflutningi á Íslandi í framtíðinni. […] [Ö]ll fjögur eru fínir leikarar sem tjá allar þessar ruglingslegu tilfinningar eins og þau skilji þær djúpum skilningi.” SA – TMM

“Fjörug og full af lífi, og góð skemmtun líka fyrir fólk sem ekki þekkir vel til óperumenningar.”
SB – RÚV

Don Pasquale er samstarfsverkefni Óðs og Þjóðleikhússins, og er styrkt af Sviðslistasjóði og Launasjóði sviðslistafólks.

Leikarar

Listrænir stjórnendur

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími