Leikari, leikstjóri og höfundur
Unnur Ösp Stefánsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2002 og hefur starfað við leikhús og kvikmyndir sem framleiðandi, leikari og leikstjóri. Hún hefur m.a. starfað í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá LA, Vesturporti, Lyric Hammersmith og Young Vic. Unnur leikur í Íbúð 10B og Saknaðarilmi í Þjóðleikhúsinu í vetur, og semur og leikur einleikinn Salka – ástin og dauðinn í Landnámssetrinu, en sýningin er unnin í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Unnur Ösp samdi ásamt Unu Torfa söngleikinn Storm og leikstýrði sýningunni, og samdi handrit Grímuverðlaunasýningarinnar Saknaðarilms í Þjóðleikhúsinu. Meðal hlutverka sem Unnur hefur leikið eru Astrid í Ellen B., Lenù í Framúrskarandi vinkonu, Nóra í Dúkkuheimilinu, Hallgerður langbrók í Njálu, Maríanna í Brot úr hjónabandi, Gréta í Hamskiptunum, Greta í Faust og Donna McAuliff í Elsku barni. Unnur stóð að sjónvarpsseríunni Föngum og lék m.a. í Verbúðinni og Ófærð. Hún leikstýrði m.a. og skrifaði Vertu úlfur og leikstýrði Sem á himni, Mamma Mia!, Kæru Jelenu og Fólkinu í blokkinni. Hún hefur hlotið fjölda leiklistarverðlauna, m.a. Grímuna fyrir leik, leikstjórn og handrit, Edduverðlaun, Stefaníustjakann og Menningarverðlaun DV. Sýning hennar Saknaðarilmur hlaut Grímuverðlaunin sem sýning ársins, auk þess sem Unnur Ösp hlaut verðlaunin fyrir leikrit ársins og leik í aðalhlutverki. Hún hlaut jafnframt Grímuna fyrir leik í Elsku barni og Dúkkuheimili, og sem höfundur og leikstjóri fyrir Vertu úlfur. Unnur Ösp hefur hlotið fálkaorðuna og verið valin bæjarlistamaður Garðabæjar.