Undir sömu stjörnu
Ástarstjarna yfir Hraundranga og kvöldstjarna Wagners
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um „Ástarstjörnu yfir Hraundranga“ samdi Richard Wagner óperuaríu til „Kvöldstjörnunnar“ sunnar í Evrópu. Skyldi það hafa verið sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?
Í þessari veglegu söngdagskrá er saga óperunnar rakin, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.
Söngvarar Óperunnar flytja okkur nokkrar fegurstu perlur Óperusögunnar en leikarar Þjóðleikhússins leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er hér fléttað saman á léttleikandi hátt.
Saga óperunnar sett í samhengi við menningarsögu Íslands
Frumsýnt verður í Hofi á Akureyri en síðan farið víða um landið og að endingu sýnt í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík. Auk einsöngvara Óperunnar og leikara Þjóðleikhússins koma fram á opnunarviðburðinum í Hofi Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, kór Akureyrarkirkju og Kammerkór Norðurlands, en viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Menningarfélag Akureyrar. Viðburðurinn verður einnig fluttur á Eskifirði í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Austurlands og menningarstofu Fjarðabyggða, í Reykjanesbæ í samstarfi við Norðuróp og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og í Skálholti í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Suðurlands.