Leikari
Kristín Þóra Haraldsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2007 og hefur leikið í fjölmörgum leiksýningum, sjónvarpsverkum og kvikmyndum. Hún leikur í Ex og Sjö ævintýrum um skömm í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún lék m.a. í Upphafi, Samþykki og Loddaranum í Þjóðleikhúsinu, í Óvitum og Ökutímum hjá Leikfélagi Akureyrar og í Medeu, Gauragangi, Fólkinu í kjallaranum, Rústað, Flóð, Auglýsingu ársins, Ræmunni og Guð blessi Ísland í Borgarleikhúsinu. Hún lék m.a. í sjónvarpsþáttaröðinni Verbúðinni og kvikmyndunum Andið eðlilega og Lof mér að falla. Hún hlaut Grímuna fyrir Auglýsingu ársins og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Loddarann, Gauragang, Samþykki, Óskasteina og Peggy Pickit sér andlit Guðs. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Lof mér að falla.
Nánar um feril:
Kristín Þóra Haraldsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007 og var þegar fastráðin hjá Leikfélagi Akureyrar. Hún lék í Óvitum, Ökutímum og Fló á skinni hjá LA. Vorið 2008 var hún fastráðinn leikari hjá Borgarleikhúsinu. Þar lék hún meðal annars í Vestrinu eina, Rústað, Fólkinu í kjallaranum, Ofviðrinu, Strýhærða Pétri, Elsku barni, Fanny og Alexander, Tengdó, Hamlet litla, Óskasteinum, Sókratesi, Flóð, Auglýsingu ársins, Ræmunni og Guð blessi Ísland. Hún lék í Samþykki og Loddaranum í Þjóðleikhúsinu leikárið 2018-2019, en hefur nú verið fastráðin við Þjóðleikhúsið og lék nýlega í Upphafi. Af nýlegum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum má nefna kvikmyndirnar Andið eðlilega og Lof mér að falla.
Kristín Þóra hlaut Grímuverðlaunin fyrir Auglýsingu ársins og var tilnefnd fyrir Loddarann, Gauragang, Samþykki, Óskasteina og Peggy Pickit sér andlit Guðs. Hún hlaut Stefaníustjakann árið 2014.