07. Mar. 2022

Umskiptingur. Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Sigrúnu Eldjárn frumsýnt á Litla sviðinu

Sara Martí Guðmundsdóttir og Sigrún Eldjárn

Laugardaginn 12. mars frumsýnir Þjóðleikhúsið Umskipting, nýtt barnaleikrit eftir einn ástsælasta barnabókahöfund landsins, Sigrúnu Eldjárn. Í verkinu bregður hún á frumlegan og sniðugan hátt á leik með minnið um umskiptinga úr þjóðsögunum okkar. Sara Martí leikstýrir og tónlistina semur Ragnhildur Gísladóttir. Umskiptingur kemur einnig út sem bók á vegum Forlagsins um þessar mundir.

Það er alltaf gleðifregn þegar nýtt íslenskt barnaleikrit ratar á fjalir leikhúsanna og ekki er það verra að verkið sé eftir einn af vinsælustu höfundum barnaefnis á umliðnum áratugum, Sigrúnu Eldjárn. Í verkinu Umskiptingur bregður hún á frumlegan og sniðugan hátt á leik með minnið um umskiptinga úr þjóðsögunum okkar. Allt frá því að fyrsta bók Sigrúnar, Allt í plati, kom út árið 1980 hefur hún fléttað texta og myndir saman í bókum sínum á allan mögulegan máta og oft mjög frumlega. Þetta er í annað sinn sem verk Sigrúnar ratar á fjalir Þjóðleikhússins en sýningin Kuggur og leikhúsvélin var sett upp árið 2014 og naut mikillar hylli.

Ævintýralegt leikrit um tröll og menn, ofurhetjur, smákríli og dreka 

Í Umskiptingi segir frá systkinunum Sævari og Bellu. Einu sinni sem oftar þarf Sævar að gæta litlu systur sinnar, sem satt að segja getur verið alveg ferleg frekjudolla! En Bella er alveg einstaklega krúttleg og þegar tröllskessa með óslökkvandi fegurðarþrá sér hana ákveður hún að skipta á henni og hinum stórgerða, uppátækjasama og hjartahlýja syni sínum, tröllastráknum Steina. Nú eru góð ráð dýr, en í ljós kemur að hjálpar má vænta úr ólíklegustu áttum!

Sara Marti er leikstjóri verksins en hún hefur komið víða við frá því að hún útskrifaðist sem leikari úr Listaháskólanum árið 2007. Sara hefur leikið bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og látið til sín taka í sjálfstæðu senunni. Sara lagði stund á leikstjórn í The Royal Central School of Speech and Drama í London og útskrifaðist þaðan árið 2010. Sara mun taka við stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós.

Það er svo engin önnur en Ragnhildur Gísladóttir sem samdi tónlistina við verkið eins og henni einni er lagið.

Þjóðleikhúsið auglýsti á síðasta ári eftir handritum eða vel útfærðum hugmyndum að barnaleikritum til að efla starfsemi leikhússins í þágu barna og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita. Þetta var jafnframt í fyrsta skipti sem auglýst var eftir barnaleikritum með þessum hætti og viðbrögðin létu sannarlega ekki á sér standa. Alls bárust 150 umsóknir.

Kaupa miða


Leikarar:

Auðunn Sölvi Hugason, Arnaldur Halldórsson, Katla Líf Drífu-Loisdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir og Andri Páll Guðmundsson.

Höfundur

Sigrún Eldjárn

Leikstjórn

Sara Martí Guðmundsdóttir

Leikmynd, búningar og brúður

Snorri Freyr Hilmarsson

Tónlist og tónlistarstjórn

Ragnhildur Gísladóttir

Söngtextar

Sigrún Eldjárn, Sara Martí Guðmundsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir

Hljóðhönnun

Kristján Sigmundur Einarsson

Lýsing

Jóhann Friðrik Ágústsson

Sviðshreyfingar

Rebecca Hidalgo

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími