Troðfullt, galopið Þjóðleikhús og öllum samkomutakmörkunum aflétt
Öllum samkomutakmörkunum hefur nú verið aflétt í leikhúsum landsins. Við hlökkum til að bjóða aftur upp á leikhúsupplifun, eins og hún á að vera. Við þökkum ykkur fyrir þann góða skilning sem þið sýnduð á aðstæðum leikhússins á þessum skrítnu tímum og ítrekum að þrátt fyrir þessar breytingar munum við áfram sýna varkárni í öllu okkar verklagi.
Haustið hefur farið frábærlega af stað í Þjóðleikhúsinu þrátt fyrir samkomutakmarkanir og miðar bókstaflega rjúka út. Nýlega voru aðventusýningar hússins, Leitin að jólunum, Lára og Ljónsi – jólasaga og Jólaboðið sett í sölu og viðtökurnar eru hreint út sagt frábærar.
Við minnum á að sala leikhúskorta er í fullum gangi líkt og sala gjafakortanna okkar vinsælu sem eru ávísun á tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar.
Við hlökkum til að sjá ykkur í leikhúsinu!