Óresteia og Lína Langsokkur hljóta flest Grímuverðlaun þetta leikárið

Óresteia valin Sýning ársins og Lína Langsokkur Barnasýning ársins en þessar tvær sýningar voru atkvæðamestar á Grímuverðlaununum og hlutu fern verðlaun hvor
Sýning Óresteia var valin Sýning ársins á Grímuhátíðinni sem haldin var fyrr í kvöld á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Alls hlaut sýningin fern grímuverðlaun. Lína Langsokkur var valin Barnasýning ársins og hlaut einnig fern verðlaun líkt og Óresteia. Söngleikurinn Kabarett sem Leikhús ókunnuga fólksins sýndi í samstarfi við Þjóðleikhúsið fékk grímu fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins. Þjóðleikhúsið hlýtur flest Grímverðlaun þetta árið, eða alls 9 talsins

Óresteia var valin Sýning ársins, Benedict Andrews fékk grímu fyrir leikrit ársins, Nína Dögg Filippusdóttir sem leikkona í aðalhlutverki og Elín Hansdóttir fékk grímu fyrir leikmynd. Óresteia í Þjóðleikhúsinu hefur fengið stórkostlegar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda. Nú liggur fyrir að sýningin verður áfram til sýninga næsta leikári og sala er hafin!
Lína Langsokkur fékk Grímuverðlaun sem Barnasýning ársins, Agnes Wild var valin leikstjóri ársins, Eva Björg Harðardóttir fékk grímu fyrir búninga ársins auk þess sem þeir Kjartan Darri Kristjánsson og Oddur Júlíusson deildu grímu fyrir frammistöðu sína sem leikarar í aukahlutverkum.

Söngleikurinn Ormstunga sem sló heldur betur í gegn á árinu fékk tólf tilnefningar til grímuverðlauna. Ormstunga og verður áfram á Stóra sviðinu næsta haust og sala í fullum gangi á þær sýningar. Leikárinu er nú senn að ljúka en það hefur verið eitt það aðsóknarmesta í sögu leikhússins frá upphafi.
Þá hlutu þær Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og Sally Cowdin grímuverðlaun fyrir dans- og sviðhreyfingar í Söngleiknum Kabarett.
Við óskum öllum þeim sem hlutu viðurkenningar í kvöld í formi tilnefninga eða grímuverðlauna hjartanlega til hamingju!
