Afi – ein ástsælasta persóna íslensks barnasjónvarps mætir á leiksviðið
Afi, sem birtist sjónvarspáhorfendum fyrir réttum 40 árum á Stöð 2, verður á Litla sviði Þjóðleikhússins næsta vetur í glænýrri barnasýningu. Verkið skrifa Agnes Wild, sem jafnframt leikstýrir og Örn Árnason sem að sjálfsögðu verður í hlutverki afa. Þessi ástsæla persóna sem Örn Árnason skapaði hefur heillað margar kynslóðir íslenskra barna og mun í þessari fallegu sýningu segja spennandi sögur með töfrum og tónlist og lenda í ýmsum ævintýrum. Nýjustu sýningar Agnesar Wild í Þjóðleikhúsinu, Lína Langsokkur og Blómin á þakinu hafa hrifið börn á öllum aldri.
Miðasala verður auglýst síðar.
