11. Des. 2020

Aðventugleði á tröppum Þjóðleikhússins

Boðið verður upp á jólaskemmtun næstu helgi á tröppum Þjóðleikhússins þar sem nokkrar ástsælustu persónur Kardemommubæjarins, ásamt Mikka ref, Ronju ræningjadóttur og Grýlu, færa gestum og gangandi jólaandann.

Um helgina verður haldin aðventugleði á tröppum Þjóðleikhússins fyrir gesti og gangandi. Nokkrar ástsælar persónur úr Kardemommubænum, þau Bastían bæjarfógeti, Soffía frænka og yngsti ræninginn, hann Jónatan, bjóða leikhúsgestum að hitta sig á torginu framan við Þjóðlex<ikhúsið, ásamt öðrum skemmtilegum leikpersónum eins og Mikka ref og Ronju ræningjadóttur. Og það er eins gott að hafa varann á, því hver veit nema sjálf Grýla láti sjá sig! Sýningar á aðventugleðinni eru margar yfir daginn til að stuðla að dreifingu áhorfenda og þeir hvattir til að fylgja gildandi nándartakmörkunum.

Fjörugar leikpersónur sem eru vanar að valsa um leiksvið Þjóðleikhússins, leika, dansa og syngja fyrir fullum sölum áhorfenda, eru farnar að finna til ákveðins einmanaleika í samkomubanninu! Nokkrar þeirra hafa því ákveðið að kíkja út á tröppur leikhússins við Hverfisgötu um helgar nú í desember, heilsa upp á gesti og gangandi og vekja hinn sanna jólaanda í brjóstum okkar.

Höfundur og leikstjóri gleðinnar er Guðjón Davíð Karlsson. Leikarar eru Örn Árnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Oddur Júlíusson, Hildur Vala Baldursdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir. Karl Olgeir Olgeirsson sér um tónlistarstjórn.

Aðventugleðin verður sýnd á laugardag og sunnudag, kl. 14, 15 og 16. Gætt er varúðarráðstafana í samræmi við fyrirmæli sóttvarnaryfirvalda og stuðlað er að dreifingu áhorfenda á svæðinu framan við leikhúsið.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími