16. Des. 2020

Listamenn Þjóðleikhússins og Sinfóníunnar hlakka svo til!

  • Listafólk Þjóðleikhússins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands senda saman frá sér nýja útgáfu af jólalaginu „Ég hlakka svo til!“
  • Um 150 tónlistarmenn og leikarar senda landsmönnum hér saknaðar-, þakkar- og tilhlökkunarkveðju eftir langan aðskilnað og truflanir á hefðbundnu starfi.
  • Textinn fjallar um jólin sem eru á næsta leiti en kveðjan vísar jafnframt til tilhlökkunar listafólksins að geta tekið á móti gestum á nýjan leik.

Þjóðleikhúsið og Sinfóníuhljómsveit Íslands tóku höndum saman á dögunum og hljóðrituðu nýja útgáfu af laginu Ég hlakka svo til, í útsetningu Hrafnkels Orra Egilssonar sellóleikara undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar hljómsveitarstjóra. Auk þess var tekið upp glæsilegt myndband þar sem listamenn beggja stofnana koma fram. Í lok óvenjulegs og krefjandi árs lítur listafólk yfir farinn veg og horfir björtum augum fram á veginn. Sviðslistafólk landsins hefur ekki getað sinnt sínum hefðbundnu störfum, tónleikasalir og leikhús hafa að mestu verið lokuð frá því um miðjan marsmánuð. Myndbandið er því eins konar saknaðar-, þakkar- og tilhlökkunarkveðja á þessum tímamótum þegar hillir undir lok baráttunnar. Upptökur fóru fram í Hörpu og Þjóðleikhúsinu á síðustu vikum þar sem listamennirnir komu einir eða í litlum hópum og tóku sinn hluta upp í samræmi við gildandi takmarkanir. Verkefnið er alfarið unnið af starfsfólki þessara stofnana.

Sinfóníuhljómsveit Íslands og Þjóðleikhúsið eru lykilmenningarstofnanir þjóðarinnar hvor á sínu sviði og fagna báðar 70 ára starfsafmæli í ár. Báðar stofnanir hafa bryddað upp á ótal nýjungum á árinu með það að markmiði að veita þjóðinni andlega næringu og gleði á þessum erfiðu tímum. Hins vegar hefur hefðbundið sýninga- og tónleikahald legið að mestu leyti niðri megnið af árinu vegna samkomubanns. Meðal verkefna sem stofnanirnar hafa boðið upp á eru heimsendingar listviðburða, streymisviðburðir, sjónvarpsútsendingar, aðventuvagn sem heimsækir dvalarheimili, sýningar fyrir skóla, útiviðburðir, ljóðaflutningur o.fl.

Lagið „Ég hlakka svo til!“ er vinsælt jólalag sem var upprunalega flutt hérlendis af Svölu Björgvinsdóttur. Lagið er þó upprunnið á Ítalíu eins og raunin er með svo mörg vinsæl jólalög hér á landi. Nýja útgáfan var útsett af Hrafnkeli Orra Egilssyni og flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu.  Söngur leikara Þjóðleikhússins var tekinn upp í Þjóðleikhúsinu en upptökum stýrði Aron Þór Arnarsson. Myndband kveðjunnar var unnið af starfsfólki stofnananna tveggja. Leikstjóri var Jón Þorgeir Kristjánsson en Margrét Ragnarsdóttir og Hallla Oddný Magnúsdóttir stýrðu verkefninu hjá SÍ. Guðjón Davíð Karlsson og Hallgrímur Ólafsson stýrðu söng yfir fimmtíu leikara.

„Sinfóníuhljómsveitin hefur á krefjandi tímum lagað sig að aðstæðum og fært þjóðinni tónlist í stórum sem smáum hópum, ferðast út um borg og bý, opnað heimili sín og spilað fyrir landsmenn heima í stofu. Ýmis tækifæri hafa falist í áskorunum síðustu mánaða og hafa nýjar miðlunarleiðir fært okkur enn nær mörgum hlustendum. En við söknum þess að hafa áheyrendur í sal, og getum ekki beðið eftir því að fylla Eldborg og upplifa listina saman“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

„Við í Þjóðleikhúsinu höfum boðið landsmönnum upp á fjölmörg ný verkefni sem auðga andann og létta lund á þessum krefjandi tímum. Við höfum leitað nýrra leiða til að miðla list okkar, bryddað upp á ýmsu skemmtilegu fyrir börn og ungmenni og einnig heimsótt fjölda dvalarheimila á Aðventuvagninum svokallaða. Hljóðleikhúsið hefur fært okkur perlur íslenskra leikbókmennta í beinni útsendingu og í samstarfi við RÚV buðum við upp á leikhúsveislu í stofunni heima, þar sem sýndar voru margar ástsælustu sýningar síðustu áratuga. En við höfum líka nýtt tímann vel til að undirbúa væntanlegar leiksýningar og hlökkum óskaplega til að taka á móti áhorfendum á ný, hrífa þá með og skapa nýjar ógleymanlegar minningar!“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími