Leikari
Kristín Þóra Haraldsdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2007 og hefur leikið í fjölmörgum leiksýningum, sjónvarpsverkum og kvikmyndum. Hún leikur í Heim og einleik sínum Á rauðu ljósi í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hún lék m.a. í Ex, Sjö ævintýrum um skömm, Upphafi, Samþykki og Loddaranum í Þjóðleikhúsinu, í Óvitum og Ökutímum hjá Leikfélagi Akureyrar og í Medeu, Gauragangi, Fólkinu í kjallaranum, Rústað, Flóð, Auglýsingu ársins, Ræmunni og Guð blessi Ísland í Borgarleikhúsinu. Hún lék m.a. í sjónvarpsþáttaröðunum Vigdísi og Verbúðinni og kvikmyndunum Andið eðlilega og Lof mér að falla. Hún hlaut Grímuna fyrir Auglýsingu ársins og var tilnefnd fyrir Sjö ævintýri um skömm, Loddarann, Gauragang, Samþykki, Óskasteina og Peggy Pickit sér andlit Guðs. Hún hlaut Edduverðlaunin fyrir Lof mér að falla.
Meira um feril:
Meðal annarra leiksýninga eru Fló á skinni hjá LA, Vestrið eina, Ofviðrið, Strýhærði Pétur, Elsku barn, Fanny og Alexander, Tengdó, Hamlet litli, Óskasteinar og Sókrates í Borgarleikhúsinu. Kristín Þóra hlaut Stefaníustjakann árið 2014.