Birgitta Birgisdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2006. Hún hefur leikið burðarhlutverk í fjölda verkefna í Þjóðleikhúsinu og starfar einnig í barna- og fræðsluteymi leikhússins.
Hér hefur hún m.a. leikið í Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur), Atómstöðinni – endurliti, Meistaranum og Margarítu, Útsendingu, Slá í gegn, Samþykki, Húsinu, Jónsmessunæturdraumi, Risaeðlunum, Hafinu, Góðu fólki, Djöflaeyjunni og Frida… viva la vida. Hún lék m.a. í Amadeusi, Gretti, Degi vonar, Gauragangi, Fólkinu í kjallaranum og Hystory í Borgarleikhúsinu. Hún lék í MammaMamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Hún var tilnefnd til Grímunnar fyrir Atómstöðina, Húsið og Fólkið í kjallaranum.
Hún lék nýlega titilhlutverkið í Ástu, í Kafbáti og í Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu.
Nánar um feril:
Birgitta Birgisdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2006.
Hún lék nýlega titilhlutverkið í Ástu, í Kafbáti og í Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu.
Hún hefur meðal annars leikið í Þjóðleikhúsinu í Ör (eða Maðurinn er eina dýrið sem grætur), Atómstöðinni – endurliti, Meistaranum og Margarítu, Útsendingu, Slá í gegn, Svartalogni, Samþykki, Jónsmessunæturdraumi, Leitinni að jólunum, Risaeðlunum, Hafinu, Húsinu, Góðu fólki og Djöflaeyjunni. Hún lék hér einnig í Frida… viva la vida og ljáði Sindra rödd sína í sýningunni um Sindra silfurfisk.
Fyrsta hlutverk Birgittu að námi loknu var Konstansa, kona Mozarts, í Amadeusi hjá Borgarleikhúsinu. Meðal annara sýninga sem hún hefur leikið í hjá Borgarleikhúsinu eru Grettir, Dagur vonar þar sem hún fór með hlutverk Öldu, Ræðismannsskrifstofan, Gauragangur þar sem hún fór með hlutverk Höllu, Kirsuberjagarðurinn í hlutverki Önju, Eldhaf, Ferjan og Fólkið í kjallaranum.
Birgitta lék í MammaMamma í Hafnarfjarðarleikhúsinu og í sýningunni HYSTORY sem var sett upp í samstarfi Sokkabandsins og Borgarleikhússins.
Birgitta var tilnefnd til Grímunnar fyrir leik sinn í Atómstöðinni, Húsinu og Fólkinu í kjallaranum.