Laxness... hver er það?

Laxness… hver er það?

Af hverju dýrka allir þennan Laxness?
Svið
Skólasýning leikferð
Frumsýnt
mars 2027

Bráðskemmtileg ný skólasýning fyrir 13-15 ára

Halldór Laxness? Hver var þessi gaur, af hverju er hann svona merkilegur og skiptir í alvörunni máli að lesa þetta stöff?

Þjóðleikhúsið býður nemendum á efsta stigi grunnskóla upp á bráðfyndna og fjöruga nýja leiksýningu, þar sem sitthvað fróðlegt og furðulegt um Nóbelsskáldið Halldór Laxness og verk hans verður sett á svið! Sýningin er byggð á ævi og verkum skáldsins og er unnin af leikhúslistafólki sem hefur starfað mikið með ungu fólki og skapað list fyrir ungt fólk um árabil.

Frásögnin einkennist af húmor, tónlist gegnir mikilvægu hlutverki og efniviðurinn verður skoðaður frá sjónarhóli yngri kynslóða.

Af hverju dýrka allir þennan Laxness?

Leikarar

Höfundar

Listrænir stjórnendur

Leikstjórn
Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími