12. Maí. 2026

Leikfélag Húsavíkur á athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins, Rocky Horror

Sýning Leikfélags Húsavíkur á Rocly Horror var valin Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2026 af valnefnd Þjóðleikhússins. Ásdís Þórhallsdóttir tilkynnti valið á hátíðarkvöldverði í lok Bandalagsþings í Reykjanesbæ á dögunum. Halla Rún Tryggvadóttir tók við verðlaunum fyrir hönd Leikfélags Húsavíkur.

Þjóðleikhúsið hefur boðið Leikfélagi Húsavíkur að sýna Rocky Horror á Stóra sviði Þjóðleikhússins og hefur sýningunni verið fundinn staðar laugardaginn 13. júní næstkomandi. Miðasala hefst 13. maí.

Úr umsögn dómnefndar:
Dómnefndin er snortin að sjá hversu margar, fjölbreyttar, metnaðarfullar og áhugaverðar sýningar fóru upp innan raða BÍL á liðnum vetri. Þetta er magnað út af fyrir sig og stóð dómnefndin því frammi fyrir ómögulegu verkefni.
Sýningin sem þó varð fyrir valinu eftir ítarlegar umræður og vandlega umhugsun vakti athygli af ýmsum ástæðum.
Ljóst er að mörg handtök fóru í undirbúning þessarar metnaðarfullu og djörfu sýningar. Þarna sást listfengi á mörgum póstum, lifandi tónlistarflutningur, skrautlegir búningar, litrík förðun, glæsileg leikmynd, ævintýraleg lýsing og umgjörðin að öllu leyti til þess fallin að vekja athygli.


Við hrósum hópnum fyrir áræðni, þor og dirfsku, jafnt í verkefnavali og framvæmd. Mörg skemmtileg augnablik eru okkur minnisstæð, söngurinn í háum gæðaflokki og túlkunin var oft huguð og frumleg. Innan um glys og gáska tekst líka að snerta á viðkvæmum kjarna verksins, sem er listrænt afrek.

Við óskum Leikfélagi Húsavíkur til hamingju með frábæra uppsetningu á verkinu Rocky Horror. Við hlökkum til að sjá ykkur í Þjóðleikhúsinu.

Kaupa miða

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími