Rocky Horror
Þegar mörk hins venjulega og óvenjuleg hverfa
Rocky Horror hefur um áratugaskeið verið svo kallað “kultklassík” víða um heim. Verkið sameinar rokktónlist, svartan húmor og ögrandi karaktera með vafasamt siðferði og býður því áhorfendum inn í ófyrirsjáanlegan og litríkan heim.
Sagan hefst þegar unga parið Brad og Janet lenda í óveðri og leita skjóls í dularfullum kastala. Þar mæta þau hinum sérvitra og óútreiknanlega Dr. Frank-N-Furter og hans föruneyti sem draga þau inn í heim þar sem mörk hins eðlilega og óvenjulega hverfa á augabragði.
Uppsetning Leikfélags Húsavíkur á Rocly Horror var valin áhugaverðasta áhugaleiksýning ársins 2026.
Upplifun sem hefur skapað sér einstakan sess í hjörtum leikhúsunnenda um allan heim
Uppfærsla Leikfélags Húsavíkur vakti sérstaka athygli fyrir metnaðarfulla nálgun á öllum sviðum. Sýningin var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins og stígur því nú á Stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu. Sú viðurkenning endurspeglar ekki aðeins listrænan metnað sýningarinnar heldur einnig þann kraft og eldmóð sem býr í íslensku áhugaleikhúsi. Með þessari uppfærslu sýndi Leikfélag Húsavíkur að það er vel hægt að skapa stórar og eftirminnilegar leiksýningar utan stærstu leikhús landsins – sýningar sem sameina fagmennsku, sköpunargleði og sterka samfélagslega þátttöku.
Rocky Horror er því ekki aðeins söngleikur, heldur upplifun sem hefur í gegnum tíðina skapað sér einstakan sess í hjörtum leikhúsunnenda um allan heim. Uppfærsla Leikfélags Húsavíkur staðfesti þann töfrakraft sem verkið býr yfir og skilaði sýningu sem lengi verður minnst fyrir djörfung, húmor og smitandi leikgleði.
Leikarar
Hljómsveit
Brynjar Friðrik Pétursson: gítar
Axel Flóvent: hljómborði
Guðný Margrét Eyjólfsdóttir: bassi
Gunnar Illugi Sigurðsson: trommur