30. Jún. 2025

Edda Ágústsdóttir fv. búningameistari við Þjóðleikhúsið er látin


Edda Ágústsdóttir, fyrrum búningameistari Þjóðleikhússins er látin.
Edda fæddist í Reykjavík 28. október 1934.  Á yngri árum starfaði Edda sem saumakona hjá Andrési en hóf síðar störf við búningasaum á saumastofu Þjóðleikhússins. Þar gerðist hún búningameistari og starfaði í Þjóðleikhúsinu í áratugi, allt til 72 ára aldurs. List hennar fólst ekki einungis í búningunum sem hún skapaði, heldur því hvernig hún lagði alúð og nákvæmni í allt sem hún gerði. Edda tók þátt í að skapa ótal búninga af listfengi og kom þannig að hundruðum leiksýninga Þjóðleikhússins á síðustu áratugum – mörgum sýningum sem eru ógleymanlegar í minnum þeirra áhorfenda sem á horfðu.

Starfsfólk Þjóðleikhússins færir fjölskyldu og vinum Eddu innilegar samúðarkveðjur og minnist hennar með hlýju. Útför Eddu fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 4. júlí 2025.

Opnunartími miðasölu
Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum.

Miðasala á vefnum, leikhusid.is er opin allan sólarhringinn.

Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið eins og miðasala.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími