Leikari
Björn Thors útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2003. Hann hefur m.a. leikið í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, hjá Vesturporti, Frú Emilíu, Volksbühne, Burgtheater, Lyric Hammersmith og The Royal Alexandra, og í ýmsum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum, m.a. í Kötlu, Brotum, Svari við bréfi Helgu, París norðursins, Djúpinu og Frosti. Hann leikstýrði hér Saknaðarilmi. Í vetur leikur hann í Yermu en meðal nýlegra verkefna sem leikari í Þjóðleikhúsinu eru Ekki málið, Vertu úlfur, Nokkur augnablik um nótt og Atómstöðin. Meðal verkefna hans sem höfundur eru Kenneth Máni og heimildaverkið Flóð. Hann hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og hlaut verðlaunin fyrir Vertu úlfur, Græna landið, Vestrið eina, Íslandsklukkuna og Afmælisveisluna. Hann fékk Edduverðlaunin fyrir Svar við bréfi Helgu og Fangavaktina og hefur hlotið þrjár tilnefningar að auki.
Meira um feril:
Meðal annarra kvikmynda sem Björn hefur leikið í eru Kona fer í stríð, Þetta reddast og Borgríki. Björn var einn handritshöfunda og annar tveggja leikstjóra kvikmyndarinnar Reykjavík Guesthouse – rent a bike. Hann var sömuleiðis einn höfunda einleiksins um Kenneth Mána. Björn var meðhöfundur og leikstýrði uppfærslu heimildaverksins Flóðs í Borgarleikhúsinu. Sýningin hlaut Sprotann, nýsköpunarverðlaun Leiklistarsambandsins og var einnig tilnefnd til Grímunnar sem besta sýning ársins. Útvarpsserían Flóð fékk tilnefningu til Prix Europa verðlaunanna 2016. Björn var tilnefndur til Grímunnar fyrir Alla syni mína, Killer Joe, Dínamít, Heimsljós, Kenneth Mána, Brot úr hjónabandi, Fólk, staði og hluti og Bæng, auk ofantaldra verðlaunasýninga. Hann fékk tilnefningu til Eddunnar fyrir Come To Harm, Djúpið og Frost. Hann hefur auk þess verið tilnefndur tvisvar til Menningarverðlauna DV og einu sinni til Nýsköpunarverðlauna Forseta Íslands. Björn hlaut Stefaníustjakann árið 2017, viðurkenningu úr minningarsjóði Frú Stefaníu Guðmundsdóttur fyrir störf sín í leiklist.