/
Starfsfólk Þjóðleikhússins

Þóroddur Ingvarsson

Hljóðmaður
/

Þóroddur Ingvarsson hefur starfað sem hljóðmaður í leikhúsi í rúm fimmtán ár, þar af tvö ár sem tæknistjóri hjá Leikfélagi Akureyrar og tvö ár sem hljóðmaður hjá Menningarfélagi Akureyrar. Þóroddur bjó og starfaði í Berlín um tíma og hlaut þar BA-gráðu í hljóðvinnslu. Hann starfar nú í hljóðdeild Þjóðleikhússins og meðal sýninga sem hann hefur unnið við nýlega eru Nýtt eldhús eftir máli, Ormstunga, Lína Langsokkur, Jólagjöf Skruggu, Stormur, Frost, Mútta Courage, Rómeó og Júlía, Framúrskarandi vinkona, Sem á himni, Draumaþjófurinn og Til hamingju með að vera mannleg. Þóroddur hefur undanfarin ár séð um hljóðstjórn fyrir Daða Frey og farið í tónleikaferðir með honum um Evrópu og Bandaríkin.

Opnunartími miðasölu
Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími