Sigurður Sigurjónsson lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands 1976. Hann hefur farið með fjöldamörg hlutverk í Þjóðleikhúsinu og víðar, leikstýrt mörgum leiksýningum og leikið í fjölmörgum kvikmyndum og í sjónvarpi. Hann leikur Eltum veðrið og Heim í Þjóðleikhúsinu í vetur. Meðal fyrri verkefna hér eru Mútta Courage, Hvað sem þið viljið, Út að borða með Ester, Rómeó og Júlía, Einræðisherrann, Maður sem heitir Ove, Amadeus, Bílaverkstæði Badda, Gauragangur, Don Juan og Villiöndin. Meðal leikstjórnarverkefna hér eru Hafið, Maður í mislitum sokkum, Glanni glæpur, Dýrin í Hálsaskógi og Sitji guðs englar. Hann hlaut Edduverðlaunin fyrir Undir trénu og Hrúta og var tilnefndur til Grímunnar fyrir Maður sem heitir Ove.
Nám:
Sigurður lauk prófi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1976.
Þjóðleikhúsið:
Sigurður hefur farið með fjöldamörg veigamikil hlutverk í Þjóðleikhúsinu í leikverkum af ólíku tagi, dramatískum verkum, gamanleikritum, barnaleikritum og söngleikjum, og leikstýrt.
Hann lék nýlega í Hvað sem þið viljið, Sem á himni, Rómeó og Júlíu, Út að borða með Ester og Framúrskarandi vinkonu í Þjóðleikhúsinu. Einnig í Shakespeare verður ástfanginn, Meistaranum og Margarítu og Útsendingu, Einræðisherranum, Jónsmessunæturdraumi, Maður sem heitir Ove, Óvini fólksins, sirkussöngleiknum Slá í gegn, Móðurharðindunum, Umhverfis jörðina á 80 dögum og Fjalla-Eyvindi. Hann var jafnframt annar handritshöfunda í Umhverfis jörðina á 80 dögum.
Meðal annarra hlutverka Sigurðar hér má nefna Kalla í Stalín er ekki hér, Árna í Stundarfriði, Amadeus í samnefndu verki, Vlas í Sumargestum, Ragga í Bílaverkstæði Badda, aðalhlutverk í gamanleikjunum Skvaldri, Með vífið í lúkunum og Kjaftagangi, Thénardier í Vesalingunum og Benna Southstreet í Gæjum og píum, Dofrann í Pétri Gaut, Sigurð Pétursson í Gleðispilinu, Mikka ref í Dýrunum í Hálsaskógi, Berg í Hafinu, Jónas í Ferðalokum, Ranúr í Gauragangi og Martini í Gaukshreiðrinu, Filip Gelburt í Glerbrotum, Sganarelle í Don Juan, séra Jens í Nönnu systur, Gregers Werle í Villiöndinni, Asdak og fleiri hlutverk í Krítarhringnum í Kákasus, Ragueneau bakarameistara í Cyrano frá Bergerac, Hubert í Lífinu þrisvar sinnum, Alfreð í Allir á svið og F2 og Albert í Edith Piaf.
Sjónvarp og kvikmyndir:
Sigurður hefur leikið í fjölmörgum íslenskum kvikmyndum og í sjónvarpi, meðal annars með Spaugstofunni. Nú síðast lék hann í verðlaunamyndinni Hrútum.
Leikstjórn:
Á síðari árum hefur Sigurður snúið sér í auknum mæli að leikstjórn.
Hér í Þjóðleikhúsinu leikstýrði Sigurður Hafinu, Gamansama harmleiknum, Manni í mislitum sokkum, Glanna glæp, Dýrunum í Hálsaskógi og Sitji Guðs englar.
Hann leikstýrði Hellisbúanum í Íslensku óperunni og Sniglaveislunni hjá Leikfélagi Akureyrar, en sýningin var síðar á fjölum Iðnó.
Verðlaun og viðurkenningar:
Sigurður hlaut Edduverðlaunin fyrir leik sinn í Undir trénu og Hrútum. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í Maður sem heitir Ove.