
Sund
Allir í laugina!
Sund er bráðskemmtilegt nýtt íslenskt verk sem fjallar um sundmenningu okkar Íslendinga með fyndnum og frumlegum hætti. Á sviðinu er sundlaug og leikarar bregða sér í hlutverk sundgesta sem hlera samtöl annarra í pottinum, sóla sig, sprikla í kvöldsundi, skella sér í gufuna og kalda pottinn. Sundlaugar eru musteri okkar Íslendinga og nú fær laugin sjálf að bregða sér á fjalir leikhússins!
Leikhópurinn Blautir búkar frumsýndi Sund í Tjarnarbíói við frábærar undirtektir á síðasta leikári. Sýning hlaut tvær tilnefningar til Grímuverðlauna, fyrir hljóðmynd og dans- og sviðshreyfingar ársins. Nú verður sýningin unnin áfram og endurfrumsýnd í Þjóðleikhúsinu, og leikari úr Þjóðleikhúsinu, Örn Árnason, bætist í hópinn!

Leikarar
Listrænir stjórnendur
Sýnt í samstarfi við leikhópinn Blautir búkar. Verkefnið var styrkt af Sviðslistasjóði. Sýningin var frumflutt í Tjarnarbíói, en er nú endurfrumsýnd í uppfærðri gerð í Þjóðleikhúsinu.