/
Hópar

Förum öll! Hlökkum til, upplifum og rifjum það upp saman síðar

Starfsmannafélög, saumaklúbbar, kórar, stórfjölskyldur, íþróttalið. Það tilheyra allir einhverjum hópi. Af hverju ekki að koma með hópinn þinn í Þjóðleikhúsið?

Algengar spurningar um hópferðir:

Er einhver afsláttur fyrir hópa?
Já, ef hópurinn er fleiri en 10, þá fáið þið 10% afslátt. Stærri hópar geta haft samband við okkur á midasala@leikhusid.is.

Er hægt að panta veitingar?
Já, það er hægt er að bera fram sérstakar óskir um veitingar. Sendu okkur línu á midasala@leikhusid.is og við sníðum veitingar fyrir hópinn að þínum óskum.

Gjafakort í Þjóðleikhúsið eru fullkomin jólagjöf

Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar

Þjóðleikhúsið býður upp á spennandi tilboð á gjafakortum.  Nú getur þú fært þeim sem þér þykir vænt um þrjár gjafir í einni. Tilhlökkun, upplifun og ógleymanlegar minningar.

Gjafakort Þjóðleikhússins felur í sér ógleymanlega stund á sýningu að eigin vali hvenær sem þiggjandanum hentar. Hægt er að stækka gjöfina með veitingum fyrir sýningu og í hléi. Einnig er hægt að velja upphæð sem hentar til að setja á gjafakortið. En almennu gjafakort Þjóðleikhússins falla aldrei úr gildi.

Það eru líka spennandi tilboð í gangi sem gilda á valdar sýningar og tilhlökkunin fylgir alltaf frítt með!

Viltu tilboð fyrir hópinn þinn? Sendu okkur línu:
midasala@leikhusid.is

Textaðar sýningar

7. sýning allra leikverka á Stóra sviðinu textuð á ensku og íslensku

Þjóðleikhúsið leggur aukna áherslu á að mæta ólíkum þörfum leikhúsgesta. Þriðja leikárið í röð verður boðið upp á textun á ensku og íslensku á 7. sýningu valinna verka. Textar birtast á skjám sem komið er fyrir til hliðar við sviðið eða fyrir ofan það, eftir því sem við á hverju sinni. Miðasala veitir upplýsingar um hentugustu sætin hverju sinni fyrir þá sem vilja nýta sér textun. Textaðar sýningar henta vel þeim sem ekki tala íslensku eða eru að læra hana, eða búa við heyrnarskerðingu.

Stórum skjám er komið fyrir í stúkunum til hiðar við sviðið eða ofan við það. Þar birtist textinn bæði á íslensku og ensku.

 

Skráðu þig á fyrirtækjalistann

Skráðu þig og fyrirtækið þitt á lista hjá Þjóðleikhúsinu og þú gætir unnið miða á leiksýningar. Þú heyrir svo frá okkur af og til ef við getum boðið þér og þínum hópi spennandi tilboð. Það er til margs að vinna.

Notaðu QR kóðann eða smelltu hér að skrá þig!

Skrá mitt fyrirtæki
Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 12 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum. Við bendum á að spjallið á Fésbókarsíðu Þjóðleikhússins er opið virka daga frá kl. 9 og frá kl. 12 um helgar og fram að sýningu.

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími