13. Jan. 2021

Vertu úlfur frumsýnt á Stóra sviðinu

Þjóðleikhúsið hefur sýningar á Stóra sviðinu að nýju föstudaginn 22. janúar, eftir nær fjögurra mánaða samfellt hlé vegna samkomubanns, með frumsýningu á einleiknum Vertu úlfur. Verkið er eftir Unni Ösp Stefánsdóttur sem einnig leikstýrir, og er byggt á bók Héðins Unnsteinssonar sem vakti verðskuldaða athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Fjallað er hispurslaust um baráttuna við geðsjúkdóma út frá sjónarhóli manns sem í senn glímir við geðraskanir og starfar innan stjórnsýslunnar á sviði geðheilbrigðismála.

Bókin Vertu úlfur kom út árið 2015 og vakti mikla athygli. Þar fjallar Héðinn Unnsteinsson á opinskáan hátt um baráttu sína við geðrænar áskoranir eftir að hafa greinst með geðhvörf sem ungur maður. Héðinn rekur þar sögu sína; baráttumannsins sem tekst að brjótast út úr vítahringnum og nær að snúa sinni skelfilegustu reynslu upp í þann styrk sem þarf til að breyta kerfinu. Héðinn hefur um árabil starfað við stefnumótunarmál í geðheilbrigðismálum og er í dag formaður Geðhjálpar.

Listahjónin heilluðust af frásögn Héðins

Leiklistarhjónin Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors heilluðust bæði af bók Héðins. Þjóðleikhúsið fékk Unni til að skrifa einleik upp úr verkinu og leikstýra, með Björn í hlutverki. Unnur hefur einnig leitað fanga í öðrum verkum eftir Héðin, svo sem blaðagreinum, ljóðum og fyrirlestrum. Upphaflega stóð til að sýna verkið í Kassanum, enda ekki oft sem einleikir rata á Stóra sviðið, en vegna samkomutakmarkana var ákveðið að nýta tækifærið og flytja sýninguna upp á stórt svið, þar sem nýir möguleikar við sviðsetningu opnast. Þetta tækifæri hefur verið afar kærkomið í því ljósi að verkið á brýnt erindi við okkur öll, ekki síst á þeim andlega krefjandi tímum sem við nú lifum. Frumsýningu verksins var jafnframt flýtt. Uppsetningin er sérstaklega sniðin að gildandi samkomutakmörkunum.

Höfundur tónlistar í sýningunni er Valgeir Sigurðsson en auk þess semja Emilíana Torrini, í samvinnu við Markétu Irglová, og Prins Póló ný lög fyrir sýninguna, innblásin af efninu. Segja má að lögin endurspegli ólíkar hliðar geðhvarfa. Lag Emilíönu fangar hinar dekkri og viðkvæmari hliðar á meðan lag Prinsins endurspeglar oflætið. Þetta er í fyrsta sinn sem Emilíana Torrini semur lag á íslensku og texti hennar er einnig notaður í lagi Prins Póló.

 

Sóttvarnir í Þjóðleikhúsinu

Þjóðleikhúsið leggur allt kapp á að gæta öryggis gesta og starfsfólks í góðu samráði við sóttvarnaryfirvöld á tímum farsóttarinnar. Við gætum vel að öllu hreinlæti og hvetjum gesti okkar til að hafa í huga eftirfarandi:

https://leikhusid.is/sottvarnir/

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími