11. Jan. 2021

Geim-mér-ei, ný brúðusýning frumsýnd

Leikhópurinn Miðnætti, í samstarfi við Þjóðleikhúsið, frumsýnir brúðusýninginuna Geim-mér-ei í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þann 16. janúar næstkomandi. Sýningin hentar einstaklega vel fyrir yngstu leikhúsgestina, en hún er unnin af leikhópnum Miðnætti sem hefur hefur vakið verðskuldaða athygli á umliðnum árum fyrir vandaðar uppsetningar sínar. Leikstjóri Geim-mér-ei er Agnes Wild.

Geim-mér-ei er ný brúðusýning án orða um ferðalag út í geim, ævintýraþrá, áræðni og óvænta vináttu. Í sýningunni er notast við blandaða brúðutækni, meðal annars japanska brúðuleikhússtílinn Bunraku. Sýningin er flutt án orða, og tónlistin er frumsamin.

Vala er 6 ára forvitin og uppátækjasöm stelpa með brennandi áhuga á himingeimnum. Kvöld eitt brotlendir geimskip í garðinum hennar. Vala fer um borð, kemur því á loft og á ferðalaginu kynnist hún sólkerfinu okkar, sér loftsteina og halastjörnur, svarthol og geimþokur. En geimskipið er bilað og brotlendir aftur á fjarlægri plánetu. Þar kynnist hún Fúm, geimveru sem hefur týnt geimskipinu sínu. Með samvinnu og útsjónarsemi koma þau Völu aftur heim. Þrátt fyrir að vera ólík og hafa í fyrstu verið smeyk við hvort annað, myndast með þeim dýrmæt vinátta.

Í sýningunni lenda Vala og Fúm í aðstæðum þar sem þau upplifa vanmátt og hræðslu en það er allt í lagi því innra með þeim býr kraftur, sjálfstæði og hugrekki. Með leiksýningunni viljum við sýna ungum leikhúsgestum að það er eðlilegt að upplifa ótta gangvart hinu óþekkta. Vala og Fúm takast á við eigin fordóma, ókunnar aðstæður og uppgjöf gagnvart erfiðu verkefni. En með samvinnu má sigrast á stærstu hindrunum.

Sýningin er fyrir börn frá 18 mánaða og fjölskyldur þeirra. Í sýningunni eru örfá orð notuð, en tónlistin verður að tungumáli sýningarinnar. Þess vegna hentar sýningin fyrir börn með ólík móðurmál og heyrnarskert börn. Þetta er kjörin fyrsta leikhúsupplifun.

Miðnætti er atvinnuleikhópur sem undanfarin ár hefur fest sig í sessi sem framúrskarandi sviðslistahópur sem sérhæfir sig í vönduðu leikhúsi fyrir börn og ungmenni. Hópinn stofnuðu þrjár listakonur, leikkonan og leikstjórinn Agnes Wild, tónlistarkonan Sigrún Harðardóttir og leikmynda- og búningahönnuðurinn Eva Björg Harðardóttir, en með hópnum starfar fjöldi frábærra listamanna. Verkefni Miðnættis hafa einkennst af fallegri og vandaðri hönnun, en einnig hafa leiklist og tónlist haldist í hendur og gengt jafn mikilvægu hlutverki og verið í lifandi flutningi í öllum verkum Miðnættis.

Agnes Wild, leikstjóri og leikkona
Eva Björg Harðardóttir, leikmyndar-, búninga- og brúðuhönnuður
Sigrún Harðardóttir, tónlistarhöfundur
Kjartan Darri Kristjánsson, ljósahönnuður
Aldís Davíðsdóttir, leikkona og brúðugerð
Nick Candy, leikari
Þorleifur Einarsson, leikari
Júlíana Kristín Liborius Jónsdóttir, aðstoðarleikstjóri
Kara Hergils, framkvæmdarstjóri

Ljósmyndir: Eyþór Árnason

FYRRI VERK MIÐNÆTTIS

Miðnætti frumsýndi barnasýninguna Á eigin fótum í Tjarnarbíói í apríl 2017. Sýningin hélt áfram leikárið 2017-18 vegna mikilla vinsælda og frábærra dóma gagnrýnenda. Sýningin var einnig
flutt í menningarhúsinu Katuaq í Nuuk í Grænlandi vorið 2017 og á barnaleikhúshátíðinni Ungi vorið 2018.
Næstu sýnignar Á eigin fótum verða á leikhúshátíðunum Theatre Children‘s Week í Póllandi í Júní 2019, Ricca Ricca festival í Japan. í Júlí 2019 og NAKS festival í Eistlandi í október 2019.

★★★★
„Töfrum líkast“
-Fréttablaðið

★★★★
„Sýning sem gleður auga
jafnt sem hjarta“
-Morgunblaðið

„Það er margt sem hrífur í þessi sýningu, hvernig brúðan lifnar, hvernig ímyndunaraflið er
virkjað, hlýtt og glatt andrúmsloftið en þó kannski hvað mest sú virðing sem leikhópurinn
sýndi hinum ungu áhorfendum.“
-María Kristjánsdóttir, Víðsjá.

„Á eigin fótum er vel unnin og þekkileg sýning sem vonandi verður langra lífdaga auðið;
sannarlega á allt lítið fólk þessa lands skilið að sjá svo vandaða sýningu og fær með henni
seiðmagnaða og töfrandi leiðsögn fyrir yngstu áhorfendurna inn í undraheim leikhússins.“
-Jakob Jónsson, Kvennablaðið.

Opnunartími miðasölu

Miðasala Þjóðleikhússins er opin virka daga frá kl. 14 – 18 og til kl. 20.00 á sýningarkvöldum. Um helgar er miðasalan opin frá kl 11 – 18 og til kl 20:00 á sýningarkvöldum

Heimilisfang
Hverfisgata 19, 101 reykjavík
Sjá á korti
Sími